Nefnir er nafn á vefriti sem Nafnfræðifélagið gefur út. Ætlunin er að þar birtist greinar á sviði nafnfræði, t.d. um örnefni eða mannanöfn. Birtar verða stuttar greinar jafnt sem langar og eru þeir sem eiga í fórum sínum efni til birtingar hvattir til að senda félaginu það. Ritstjórn áskilur sér allan rétt til að hafna greinum ef svo ber undir. Enginn sérstakur útkomutími vefritsins er ákveðinn heldur verða greinar birtar eftir því sem þær berast.
Ritstjórn: Hallgrímur J. Ámundason, Jónína Hafsteinsdóttir og Svavar Sigmundsson