Flýtileiðir á vef Stofnun íslenskra fræða:


Algengustu bæjarnöfnin

Algengasta bæjarnafnið á Íslandi samkvæmt Bæjatalinu hér á síðunni er nafnið Hóll sem kemur fyrir 31 sinni. Fast á hæla þess er Hvammur og Bakki í þriðja sæti. Hér að neðan er birtur listi yfir algengustu bæjarnöfnin. Sýnd eru öll nöfn sem koma fyrir tíu sinnum eða oftar. Tölurnar miðast við Bæjatalið eins og það var í maí 2011.

  1. 31 Hóll
  2. 28 Hvammur
  3. 24 Bakki
  4. 22 Hlíð
  5. 21 Grund
  6. 20 Brekka
  7. 19 Gröf
  8. 18 Þverá
  9. 17 Tunga
  10. 17 Kirkjuból
  11. 16 Hof
  12. 15 Miðhús
  13. 15 Hólar
  14. 14 Krókur
  15. 14 Hamar
  16. 13 Skarð
  17. 13 Saurbær
  18. 13 Holt
  19. 12 Uppsalir
  20. 12 Höfði
  21. 12 Hamrar
  22. 12 Hagi
  23. 12 Garður
  24. 12 Fell
  25. 12 Eyri
  26. 12 Ásgarður
  27. 12 Ás
  28. 11 Reykir
  29. 11 Kross
  30. 11 Foss
  31. 11 Bær
  32. 11 Breiðabólstaður
  33. 10 Hraun
  34. 10 Háls
  35. 10 Borg
  36. 10 Bjarnastaðir
  37. 10 Ártún
  38. 10 Árbær