Flýtileiðir á vef Stofnun íslenskra fræða:


Á döfinni 2012

jan. | feb. | mars | apríl | maí | júní | júlí | ág. | sept.okt.nóv. | des.

Janúar

  • 9. janúar

Háskóli Íslands
Icelandic Online Plus I
Hinn 9. janúar hefst 8 vikna námskeið í íslensku sem öðru og erlendu máli á vegum Háskóla Íslands sem nefnist: Icelandic Online Plus I. Námskeiðið er ætlað háskólanemum með litla þekkingu á íslenskri tungu og fer fram á vefnum. Umsóknarfrestur er til 4. janúar.
www.hi.is/skolinn/icelandic_online

  • 9. janúar

Háskóli Íslands
Icelandic Online Plus II
Hinn 9. janúar hefst 8 vikna námskeið í íslensku sem öðru og erlendu máli á vegum Háskóla Íslands sem nefnist: Icelandic Online Plus II. Námskeiðið er ætlað háskólanemum með grunnþekkingu á íslenskri tungu og fer fram á vefnum. Umsóknarfrestur er til 4. janúar.
www.hi.is/skolinn/icelandic_online

  • 11. janúar

Þjóðmenningarhúsið
Góssið hans Árna
Hádegisfyrirlestur í erindaröðinni Góssið hans Árna um valin handrit úr safni Árna Magnússonar. Már Jónsson flytur erindið Jónsbókarhandrit frá 14. öld sem Árni eignaðist ungur: AM 344 fol.
Lesa um fyrirlesturinn

  • 12. janúar

Háskóli Íslands
Íslandskynning
Á vormisseri skipuleggja Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og íslenskudeild við Háskóla Íslands Íslandskynningu fyrir erlenda stúdenta á háskólastigi. Kynningin er í formi fyrirlestra og heimsókna á söfn, stofnanir og í fyrirtæki og ferðalaga á þekkta sögu- og náttúruminjastaði. Boðið verður upp á kynnisferð um Reykjavík.
www.ask.hi.is/page/introice

  • 25. janúar

Þjóðmenningarhúsið
Góssið hans Árna
Hádegisfyrirlestur í erindaröðinni Góssið hans Árna um valin handrit úr safni Árna Magnússonar. Árni Heimir Ingólfsson flytur erindið Kvæða- og tvísöngsbók frá Vestfjörðum: AM 102 8vo.
Dagskrá vetrarins
 

Febrúar

  • 1. febrúar

Háskóli Íslands
Icelandic Medieval Studies
Umsóknarfrestur fyrir MA nám í íslenskum miðaldafræðum fyrir erlenda stúdenta.
Meira um námskeiðið

  • 8. febrúar

Þjóðmenningarhúsið
Góssið hans Árna
Hádegisfyrirlestur í erindaröðinni Góssið hans Árna um valin handrit úr safni Árna Magnússonar. Ásdís Egilsdóttir flytur erindið Handrit handa konum: AM 431 12mo.
Dagskrá vetrarins

  • 15. febrúar
Háskóli Íslands
Icelandic Summer Course
Umsóknarfrestur um sumarnámskeið stofnunarinnar og Háskóla Íslands í íslensku fyrir erlenda stúdenta.
www.arnastofnun.is/page/arnastofnun_al_sumarnamskeid
  • 15. febrúar
University of Minnesota
A Journey into the Viking past
Umsóknarfrestur um sumarnámskeið í íslensku við Minnesotaháskóla og Háskóla Íslands.
www.arnastofnun.is/page/arnastofnun_al_namskeid_minnesota
  • 22. febrúar

Þjóðmenningarhúsið
Góssið hans Árna
Hádegisfyrirlestur í erindaröðinni Góssið hans Árna um valin handrit úr safni Árna Magnússonar. Úlfar Bragason flytur erindið Reykjarfjarðarbók Sturlungu: AM 122 b fol.
Dagskrá vetrarins
 

Mars

  • 1. mars

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Styrkir til náms í íslensku
Umsóknarfrestur um styrki stjórnvalda til erlendra stúdenta til náms í íslensku við Háskóla Íslands.
Um styrkinn (á ensku)

  • 1. mars

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
NORDKURS
Umsóknafrestur um sumarnámskeið í Norðurlandamálum á vegum NORDKURS-nefndarinnar.
www.nordkurs.org

  • 5. mars

Háskóli Íslands
Icelandic Online Plus I
Hinn 9. janúar hefst 8 vikna námskeið í íslensku sem öðru og erlendu máli á vegum Háskóla Íslands sem nefnist: Icelandic Online Plus I. Námskeiðið er ætlað háskólanemum með litla þekkingu á íslenskri tungu og fer fram á vefnum.
www.hi.is/skolinn/icelandic_online

  • 5. mars

Háskóli Íslands
Icelandic Online Plus II
Hinn 9. janúar hefst 8 vikna námskeið í íslensku sem öðru og erlendu máli á vegum Háskóla Íslands sem nefnist: Icelandic Online Plus II. Námskeiðið er ætlað háskólanemum með grunnþekkingu á íslenskri tungu og fer fram á vefnum.
www.hi.is/skolinn/icelandic_online

  • 7. mars

Þjóðmenningarhúsið
Góssið hans Árna
Hádegisfyrirlestur í erindaröðinni Góssið hans Árna um valin handrit úr safni Árna Magnússonar. Margrét Eggertsdóttir flytur erindið Langa Edda - Goð og gyðjur í máli og myndum: AM 738 4to.
Dagskrá vetrarins

  • 9.-10. mars

Háskóli Íslands
Hugvísindaþing
Erindi starfsmanna stofnunarinnar á Hugvísindaþingi verða birt þegar nær dregur.
www.hi.is/vidburdir/hugvisindathing_2012

  • 12. mars

Björvin
Fundur Samstarfsnefndar um Norðurlandafræðslu erlendis
Norræn samstarfsnefnd um Norðurlandafræðslu erlendis, sem stofnunin á aðild að, heldur fund í Bergen. Hlutverk nefndarinnar er að efla kennslu í Norðurlandamálum erlendis og styðja menningarkynningu og upplýsingamiðlun, sem norrænir sendikennarar og erlendir samstarfsmenn þeirra sinna við háskólastofnanir í norrænum málum og bókmenntum, bæði innan og utan Norðurlanda.

  • 15. mars

Háskóli Íslands
Íslenskunámskeið fyrir norræna stúdenta
Umsóknarfrestur um sumarnámskeið í íslensku fyrir norræna stúdenta á vegum Nordkurs í samstarfi við stofnunina. Námskeiðið hefst 6. júní.
www.nordkurs.org/

  • 15. mars

Háskóli Íslands
Alþjóðlegur sumarskóli í handritafræðum
Umsóknarfrestur um þátttöku í alþjóðlegum sumarskóla í handritafræðum rennur út 15. mars. Skólinn er á vegum stofnunarinnar og Den Arnamagnæanske Samling í Kaupmannahöfn í samvinnu við Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn og háskólana í Tübingen, Zürich og Cambridge. Námskeiðn fara fram ár hvert í ágústmánuði. Í sumar er námskeiðið haldið í Kaupmannahöfn en annað hvert ár fer það fram í Reykjavík.
www.arnastofnun.is/page/arnastofnun_hand_sumarskoli

  • 21. mars

Þjóðmenningarhúsið
Góssið hans Árna
Hádegisfyrirlestur í erindaröðinni Góssið hans Árna um valin handrit úr safni Árna Magnússonar. Svanhildur Óskarsdóttir og Ludger Zeevaert flytja erindið Við upptöku Njálu: AM 162 B fol.
Dagskrá vetrarins
 

Apríl

  • 18. apríl

Þjóðmenningarhúsið
Góssið hans Árna
Hádegisfyrirlestur í erindaröðinni Góssið hans Árna um valin handrit úr safni Árna Magnússonar. Jóhanna Katrín Friðriksdóttir flytur erindið Síðasta glæsta sagnahandritið: AM 152 fol.
Dagskrá vetrarins

Maí

  • maí

Ársfundur stofnunarinnar
Ársfundur Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum verður haldinn í maí.

  • maí

Háskóli Íslands
Miðaldanámskeið
Hugvísindasvið Háskóla Íslands og stofnunin gangast fyrir tveggja vikna námskeiði um miðaldafræði. Námskeiðið er hluti af MA námi í íslenskum miðaldafræðum en ætlunin er að aðrir MA nemar í íslensku og sagnfræði geti einnig sótt námskeiðið.

  • 21. maí – 29. júní

Minneapolis, Reykjavík
Íslenskunámskeið
Dagana 21. maí til 29. júní gangast stofnunin og deild germanskra mála við Minnesotaháskóla í Bandaríkjunum fyrir námskeiði í nútímaíslensku fyrir norðurameríska stúdenta. Fyrri helmingur námskeiðsins fer fram í Minneapolis en síðari hlutinn í Reykjavík. Auk íslenskunámsins hlýða stúdentarnir á fyrirlestra um íslenskt samfélag og menningu og heimsækja, meðan á dvöl þeirra á Íslandi stendur, sögustaði á Suður- og Vesturlandi. Þetta er í tólfta skipti sem boðið er upp á slíkt námskeið fyrir norðurameríska stúdenta.
www.árnastofnun.is/page/arnastofnun_al_namskeid_minnesota
 

Júní

  • 4. – 29. júní

Háskóli Íslands
Íslenskunámskeið - Nordkurs
Stofnunin og hugvísindasvið Háskóla Íslands annast skipulagningu á fjögurra vikna námskeiði í íslensku fyrir um 30 norræna stúdenta sem fram fer í Reykjavík dagana 4. júní – 29. júní.

  • 11. – 21. júní

Háskóli Íslands
Snorraverkefnið
Stofnunin annast tveggja vikna íslenskunámskeið fyrir ungmenni frá Kanada af íslensku bergi sem taka þátt í svokölluðu Snorraverkefni og dveljast hér á landi um sex vikna skeið við nám og störf.
snorri.is
 

Júlí

  • 2. – 27. júlí

Háskóli Íslands
Íslenskunámskeið
Dagana 2. – 27. júlí halda stofnunin og hugvísindasvið Háskólans alþjóðlegt námskeið í nútímaíslensku. Um 30 erlendir stúdentar og 25 þýðendur á vegum Evrópusambandsins sækja námskeiðið. Auk íslenskunámsins hlýða þeir á fyrirlestra um íslenskt samfélag og menningu og heimsækja sögustaði á Suður- og Vesturlandi. Alþjóðleg sumarnámskeið í íslensku eru haldin hvert ár.
www.árnastofnun.is/page/arnastofnun_al_sumarnamskeid

  • júlí

Siglufjörður
Þjóðlagaakademían 2012
Námskeið um íslenska þjóðlagatónlist sem Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði og stofnunin standa fyrir í tengslum við Þjóðlagahátíð á Siglufirði. Námskeiðið hefur verið metið til 2e hjá Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands.
http://setur.fjallabyggd.is/is/page/thjodlagasetur
 

Ágúst

  • 5.-11. ágúst

Aarhus, Danmörk
Alþjóðlegt fornsagnaþing í Árósum
Nánari upplýsingar á heimasíðunni:
http://sagaconference.au.dk/en/front/

  • ágúst
Háskóla Íslands
Alþjóðlegur sumarskóli í handritafræðum
Alþjóðlegur sumarskóli í handritafræðum er á vegum stofnunarinnar og Árnastofnunar í Kaupmannahöfn (Den Arnamagnæanske Samling) í samvinnu við Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn og háskólana í Tübingen,  Zürich og Cambridge. Í sumar fer kennlan fram í Kaupmannahöfn en annað hvert ár er kennt í Reykjavík.
Meira um handritaskólann
  • ágúst

Háskóli Íslands
Erlendir styrkþegar
Erlendir stykþegar koma til náms í íslensku sem öðru máli. Móttaka á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Um stúdentastyrkinn (á ensku)
 

September

  • September

Íslandskynning
Á haustmisseri skipuleggja Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og íslenskuskor við Háskóla Íslands Íslandskynningu fyrir erlenda stúdenta á háskólastigi. Kynningin er í formi fyrirlestra og heimsókna á söfn, stofnanir og í fyrirtæki. Þá verður farið í réttir í september.

  • 14. september
Norræna húsið
Sigurðar Nordals fyrirlestur
Á fæðingardegi dr. Sigurðar Nordals hinn 14. september gengst stofnunin fyrir svokölluðum Sigurðar Nordals fyrirlestri. Fyrirlesari verður auglýstur þegar nær dregur.
  • 21.-22. september

Björgvin
NORDKURS fundur
Árlegur NORDKURS fundur verður haldinn í Kaupmannahöfn. Á fundinum er rætt um þau námskeið sem haldin hafa verið 2012 og tekin ákvörðun um námskeið 2013 og gerð áætlun um framtíðarnámskeið. Skrifstofa NORDKURS nefndarinnar er á stofnuninni árin 2011–13.
 

Október

 

Nóvember

  • 1. nóvember
Snorrastyrkir
Umsóknarfrestur um styrki Snorra Sturlusonar fyrir 2013 er til 1. nóvember. Styrkirnir eru ætlaðir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. Sérstök nefnd veitir styrkina og verður tilkynnt um úthlutun hennar í desember.
www.arnastofnun.is/page/arnastofnun_al_styrkir_snorra
  • 16. nóvember

Dagur íslenskrar tungu
Þann 16. nóvember ár hvert, sem er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar, er dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur um land allt. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum annast ýmsa verkþætti í tengslum við viðburði þennan dag.
www.menntamalaraduneyti.is/menningarmal/dit/

  • Nóvember

Fundur Samstarfsnefndar um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis
Norræn samstarfsnefnd um Norðurlandafræðslu erlendis, sem stofnunin á aðild að, heldur haustfund sinn. Hlutverk nefndarinnar er að efla kennslu í Norðurlandamálum erlendis og styðja menningarkynningu og upplýsingamiðlun, sem norrænir sendikennarar og erlendir samstarfsmenn þeirra sinna við háskólastofnanir í norrænum málum og bókmenntum, bæði innan og utan Norðurlanda. Úthlutað verður styrkjum úr svokallaðri lektorpúlju og til verkefna í Norður-Ameríku.

  • Nóvember

París
Lektoraráðstefna
Samstarfsnefnd um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis gengst fyrir ráðstefnu um kennslu í norðurlandamálum og bókmenntum  fyrir kennara í Norðurlandafræðum í Suður- og Suðvestur-Evrópu.
 

Desember

  • Desember

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Snorrastyrkir
Tilkynnt um úthlutun Styrkja Snorra Sturlusonar 2013.