Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og hugvísindasvið Háskóla Íslands standa fyrir alþjóðlegu sumarnámskeiði í júlímánuði ár hvert í íslensku máli og bókmenntum, sögu og samfélagi. Námskeiðið er einkum ætlað stúdentum í tungumála- og bókmenntanámi en aðrir þeir sem áhuga hafa á íslensku nútímamáli og menningu eiga þess kost að sækja námskeiðið.
35 nemendur geta tekið þátt í námskeiðinu ár hvert, og er þeim skipt í tvo hópa eftir getu. Nemendur þurfa að hafa lokið námskeiðinu Icelandic Online I sem hægt er að nálgast frítt á Netinu. Kunnátta er prófuð. Kennslan fer fram í 80 kennslustundum, 3-5 stundum á dag í fjórar vikur. Auk þess er boðið upp á fyrirlestra um íslenska sögu, menningu og samfélag. Námskeiðið getur veitt 10 ECTS einingar á BA stigi.
Þátttökugjald fyrir sumarið 2012 er 360 evrur (miðað við gengi 20. september 2011) en með því greiða þátttakendur fyrir kennslu og fyrirlestra og ennfremur kynnisferð um Reykjavík og dagsferðir á sögustaði sem farnar eru á vegum námskeiðsins. Þátttakendur verða að greiða allan annan kostnað sjálfir, s.s. ferðakostnað og uppihald. Hægt er að útvega þeim þátttakendum sem vilja húsnæði á einkaheimilum og er leigan u.þ.b. 290 evrur. Engin þjónusta er innifalin. Reiknað er með að nemarnir þurfi a.m.k. 20 evrur á dag í fæðispeninga. Ekki er hægt að fá þátttökugjaldið endurgreitt.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar ár hvert og geta umsækjendur vænst þess að fá svar við umsóknum í mars. Þátttakendur eru þá beðnir um að greiða þátttökugjaldið sem staðfestingu á umsókn.
Nánari upplýsingar um námskeiðið, verð og umsóknareyðublað (á ensku)
|