Á alþjóðasviði er unnið að kynningu og eflingu rannsókna á íslenskri menningu hvarvetna í heiminum;
þar er haldið utan um kennslu í íslensku í erlendum háskólum af hálfu íslenskra stjórnvalda;
þar er samstarf við hugvísindadeild Háskóla Íslands um námskeið í íslensku og íslenskum fræðum fyrir erlenda stúdenta og um rannsóknir á íslensku sem öðru og erlendu máli;
þar er umsjón með samskiptum við erlenda náms- og fræðimenn.