Á alþjóðasviði stofnunarinnar er lögð áhersla á að kynna íslenska menningu hvarvetna í heiminum.
Nám í íslensku fyrir erlenda stúdenta
Samstarf er við hugvísindadeild Háskóla Íslands um námskeið í íslensku og íslenskum fræðum og um rannsóknir á íslensku sem öðru og erlendu máli.
Nám í íslenskum miðaldafræðum fyrir erlenda stúdenta
Háskóli Íslands býður upp á nám í miðaldafræðum í samstarfi við stofnunina.
Íslenskukennsla erlendis
Alþjóðasvið hefur umsjón með kennslu í íslensku og þjónustu við háskólakennara í íslensku við erlenda háskóla af hálfu íslenskra stjórnvalda.
Stofnunin á aðild að norrænni samstarfsnefnd um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis, alþjóðasvið annast skrifstofuhald hennar.
Erlendir náms- og fræðimenn
Á alþjóðasviði er umsjón með samskiptum við erlenda náms- og fræðimenn. Sviðið annast styrki Snorra Sturlusonar sem eru veittir árlega erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum. Sviðið annast umsýslu með styrkjum mennta- og menningarmálaráðuneytis til erlendra stúdenta til íslenskunáms við Háskóla Íslands.
|