Flýtileiðir á vef Stofnun íslenskra fræða:


Bókasafn

Á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er starfrækt öflugt rannsóknarbókasafn í íslenskum fræðum, evrópskum miðaldafræðum og þjóðfræðum. Þar eru einnig örfilmur og myndir af handritum á pappír og á stafrænu formi.  Á nafnfræðisviði eru einkum íslensk og erlend nafnfræðirit og rit sem varða héraðasögu og landlýsingar. Þar er einnig gott kortasafn, aðallega kort af Íslandi, en einnig kort af Danmörku, Færeyjum, Grænlandi, Hjaltlandi og Noregi. Á þjóðfræðisviði er varðveittur mikill fjöldi hljóðrita. Á málræktar- og orðfræðisviði er málfræðibókasafn Kjartans G. Ottóssonar og fleiri rit um málfar, íðorðafræði og orðabókargerð.
 
Í safninu öllu eru um 36.800 bækur og því berast u.þ.b. 156 tímaritatitlar og mikill fjöldi sérprenta. Sjóðir Þorsteins M. Jónssonar og Birgit Baldwin standa straum af árlegum vexti safnsins. Safnið á aðild að Gegni.
Það er ætlað til afnota fyrir sérfræðinga stofnunarinnar og aðra sem stunda rannsóknir á eða hafa áhuga á fræðasviðinu.

 

Vinnuaðstaða

Á stofnuninni er lestrar- og vinnuaðstaða fyrir 14 gesti á lestrarsal í Árnagarði. Fræðimenn og stúdentar í meistara- og doktorsnámi á fræðasviði stofnunarinnar geta sótt um borð. Sækja þarf um með nokkrum fyrirvara. Þeir sem þess óska skulu hafa samband við bókavörð stofnunarinnar, Ólöfu Benediktsdóttur, í síma 525 4022, bréfsíma 525 4035 eða með tölvupósti.