Leiðbeiningar um leit í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans |
| Upphafsvalmynd Í upphafsvalmynd birtist leitargluggi þar sem notendur slá inn orðið sem þeir vilja fá vitneskju um og smella síðan á "Leita". Þannig er búið um safnið að einungis er hægt að leita að heilum orðum. Leitað er að hefðbundinni uppflettimynd orðs eins og hún birtist venjulega í orðabókum, t.d. nefnifalli eintölu af nafnorðum, nafnhætti sagna o.s.frv. Ritháttur uppflettimynda er að jafnaði staðlaður miðað við nútímamál. Ritháttur orða getur í sumum tilvikum verið á reiki og fleiri en ein ritmynd komið til greina. Það getur t.d. átt við um gömul og ný tökuorð, orð sem einkum eru notuð í talmáli, mjög sjaldgæf orð, orð þar sem fleiri en ein stafsetning kemur til greina o.fl. Ef leit að slíkum orðum ber ekki árangur í fyrstu atrennu er notendum því bent á að endurtaka hana með öðrum rithætti uppflettiorðsins. Niðurstaða leitar Niðurstöðurnar birtast í tvískiptum glugga:
Aldur dæma er táknaður með tölu sem sýnir öldina (t.d. 19 = 19. öld) ásamt bókstaf sem sýnir frá hvaða hluta viðkomandi aldar dæmið er. Hverri öld er skipt í þriðjunga (f = fyrsta þriðjungur aldar; m = miðbik aldar; s = síðasta þriðjungur aldar). Með 20m er þá t.d. átt við miðbik 20. aldar, þ.e.a.s. tímabilið 1934–1967. Þegar heimildin sem dæmið kemur úr spannar lengra tímabil eða ef óvíst er um nákvæma tímasetningu eru notaðar samtengdar skammstafanir (t.d. 19fm = fyrsti þriðjungur og/eða miðbik 19. aldar; 19s20f = síðasti þriðjungur 19. aldar og/eða fyrsti þriðjungur 20. aldar). Heimildartilvísanir byggjast á skammstöfunum. Skýring á þeim fæst með því að smella á skammstöfunina. Dæmafjöldinn sem tilgreindur er vísar til þeirra dæma sem tiltæk eru í gagnasafni og notendur hafa beinan aðgang að á vefsíðunni. Í sumum tilvikum geta verið fleiri dæmi í seðlasafninu og ef fjöldi dæma er ekki tilgreindur þýðir það að um orðið er a.m.k. eitt notkunardæmi á seðli. Úr glugganum með niðurstöðum leitar má kalla fram dæmin um leitarorðið á tvennan hátt.
Þegar smellt hefur verið á "Sjá dæmi" birtast öll tiltæk dæmi um orðið í aldursröð. Hver síða takmarkast við 100 dæmi og séu dæmin fleiri en það er flett með því að smella á "Næsta síða". Efst til hægri er gefinn kostur á að endurraða dæmunum. Um þrenns konar röðun er að ræða:
Neðst á dæmasíðunni er leitargluggi með fyrirsögninni "Takmarka listann við dæmi sem innihalda:" Þar má leita að tilteknum stafastreng (orði, orðmynd eða orðhluta) í dæmasafni orðsins. Hægt er að leita að fleiri en einum stafastreng í einu og eru strengirnir þá aðgreindir með kommu. Þegar smellt er á "Leita" birtast einungis þau dæmi um orðið þar sem viðkomandi strengur kemur fyrir. Undir fyrirsögninni "Heimild" er vísað til heimildar dæmisins, sem skýrist nánar ef smellt er á skammstöfunina. Þar kemur einnig fram aldur dæmisins tilgreindur á sama hátt og í niðurstöðuglugganum. Orðmyndir Sé smellt á "Sjá orðmyndir í dæmum" í niðurstöðuglugganum birtist yfirlit um þær orð- og ritmyndir af leitarorðinu sem koma fyrir í dæmasafninu. Þar koma einnig fram upplýsingar um fjölda dæma með hverri mynd og tímabilið sem þau spanna. Í sumum tilvikum eru tilgreindar tvenns konar myndir í yfirlitstöflunni, ritmyndir og orðmyndir:
Orð- og ritmyndir í yfirlitinu eru virkar og ef smellt er á tiltekna mynd birtast þau dæmi um leitarorðið þar sem viðkomandi mynd kemur fyrir. |




Sjá fleiri gagnasöfn




Fyrirspurn
Veftré
English
Skandinavisk