Um Ritmálssafn Orðabókar Háskólans |
| Safnið spannar tímabilið frá 1540 til nútímans. Gagnasafnið geymir upplýsingar um öll orð í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans auk notkunardæma um flest þeirra. Auk þess eru þar upplýsingar um heimildirnar sem dæmin eru sótt til. Alls eru í safninu yfir 600 þúsund uppflettiorð og dæmafjöldinn er um 2 milljónir. Um hvert uppflettiorð eru eftirtaldar upplýsingar:
Í flestum tilvikum er hægt að sjá notkunardæmi um orðið í gagnasafninu. Þó hafa dæmi ekki verið skráð í gagnasafn þegar einungis er til eitt eða mjög fá notkunardæmi um orðið. Einnig vantar talsvert af dæmum úr bundnu máli í gagnasafnið. Heimildarskammstöfun er tilgreind með hverju dæmi og safnið geymir nánari upplýsingar um allar heimildir sem dæmin er fengin úr. Seðlasafnið er varðveitt í húsakynnum stofnunarinnar á Neshaga 16, efstu hæð. Þangað verða notendur að sækja til að skoða dæmi sem ekki hafa enn verið skráð í gagnasafn. |




Sjá fleiri gagnasöfn




Fyrirspurn
Veftré
English
Skandinavisk