Flýtileiðir á vef Stofnun íslenskra fræða:


Ljósmyndastofa

Myndapantanir

Á ljósmyndastofu stofnunarinnar er unnið að stafrænni myndatöku handritanna og hefur nú þegar verið myndaður í stafrænu formi fjöldi handrita í vörslu Árnastofnunar. Þær myndir eru aðgengilegar á sameiginlegum handritavef Árnastofnana í Reykjavík og Kaupmannahöfn og Landsbókasafns www.handrit.is ásamt handritamyndum frá hinum stofnununum tveimur. Þetta myndasafn vex í takt við það hvernig vinna við myndatöku og það að koma myndunum inn á vefinn gengur. Á heimasíðu stofnunarinnar undir tenglinum Stafrænt handritasafn má skoða eldra safn stafrænna mynda í fremur lágri upplausn, einkum af skinnbókum sem enn hafa ekki komist inn á hinn nýja vef. Á Sagnaneti  er einnig allnokkurt safn stafrænna mynda úr yngri handritum á pappír sem ekki hefur enn verið komið fyrir á www.handrit.is.

Markmið Árnastofnunar er að eignast eftirgerðir af öllum íslenskum handritum sem varðveitt eru erlendis. Mikið vantar á að því marki hafi verið náð, en allmiklu safni hefur þó verið komið upp á liðnum árum. Stofnunin á því nokkurt safn örfilma og ljósmynda af íslenskum handritum í erlendum söfnum. Stefnt er að því að fylla í það safn en Danir gáfu til þess fé á ellefu alda afmæli Íslandsbyggðar. Í tengslum við lok handritaskiptanna hétu íslensk stjórnvöld stofnuninni sérstökum fjárveitingum til þess að koma sér upp á næstu árum ljósmyndum af þorra íslenskra handrita sem eftir verða í dönskum söfnum. I Den Arnamagnæanske Samling í Kaupmannahöfn eru til örfilmur og ljósmyndir af öllum þeim handritum sem þaðan komu og hingað heim.

Þó að ljósmyndir komi ekki að fullu í stað handrita eru þær handhægari að vinna með, og við notkun þeirra er handritunum hlíft við óþarfa sliti.  Hægt er að fá upplýsingar um filmu- og  myndaeign stofnunarinnar hjá bókaverði. Ljósmyndari stofnunarinnar er Jóhanna Ólafsdóttir.

Myndapantanir

Hægt er að panta, gegn gjaldi, myndir úr handritum stofnunarinnar vegna rannsókna og til birtingar. Þær eru afgreiddar stafrænt á geisladiskum. Stofnunin selur birtingarrétt á þeim  og þess skal ævinlega getið hvaðan myndirnar eru komnar.
 

Birtingargjald

  • Gjald fyrir birtingu ljósmynda í lit eða svart-hvítra er 6000 kr. pr. mynd.
  • Gjald fyrir yfirfærslu mynda á geisladisk er 600 kr.
  • Á ofangreint verð leggst virðisaukaskattur 25,5%.
  • Póstburðargjald greiðist af móttakanda.
  • Vegna birtingar handritamynda í fræðibókum eða fræðilegum tímaritum sem koma út í litlum upplögum getur stofnunin veitt afslátt frá taxta.


Stafrænar myndir til notkunar við fræðistörf

  • Fyrsta mynd úr hverju handriti kr. 2000 en síðan 300 kr. fyrir hverja mynd.
  • Á ofangreint verð leggst virðisaukaskattur 25,5%
  • Verðskrá er endurskoðuð án fyrirvara.