Ritsafn Hallgríms Péturssonar |
Fræðileg heildarútgáfa á verkum Hallgríms Péturssonar
Hallgrímur Pétursson (1614-1674) var eitt fremsta skáld Íslendinga fyrr og síðar og eftir hann liggur fjöldi sálma og kvæða, auk rímna- og sálmaflokka og fáeinna lausamálstexta. Einungis tvö kvæði Hallgríms, auk Passíusálmanna, eru varðveitt í eiginhandarriti, en hann varð snemma vinsælt skáld og því voru mörg kvæða hans skrifuð upp hvað eftir annað auk þess sem þau gengu manna á milli í munnlegri geymd. Varðveisla kvæðanna er því oft flókin. Rannsóknin beinist að öllum uppskriftum kvæða sem eru eignuð Hallgrími í handritum (stundum ranglega) og hliðsjón er einnig höfð af fyrstu prentuðu útgáfum kvæðanna á 18. öld og efni úr segulbandasafni Árnastofnunar. Upplýsingum um uppskriftir kvæðanna er komið í sérstakan gagnagrunn. Útgáfan verður í fjórum hlutum, Ljóðmæli, Sálmaflokkar, Rímur, Laust mál, alls 8 bindi. Fjögur bindi eru nú komin út og unnið er að því fimmta. Útgáfuna önnuðust Margrét Eggertsdóttir, Svanhildur Óskarsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir. Verkefnisstjórar: Margrét Eggertsdóttir, Kristján Eiríksson og Svanhildur Óskarsdóttir.
|




Sjá fleiri gagnasöfn




Fyrirspurn
Veftré
English
Skandinavisk