Flýtileiðir á vef Stofnun íslenskra fræða:


Leiðsögn um sýninguna Handritin

       handrits_opna

Safnkennari tekur á móti skólahópum á handritasýningu Árnastofnunar í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík virka daga eftir samkomulagi. Leiðsögnin er ætluð nemendum á mið- og unglingastigi grunnskóla, auk menntaskóla- og háskólanemum, og er hver heimsókn sniðin að þörfum nemenda. Heimsóknin tekur um 50 mínútur og rúmar sýningarrýmið að hámarki 25-30 manns. Skólahópar greiða ekki aðgangseyri. Nánari upplýsingar um leiðsögnina og bókanir veitir safnkennarinn, Svanhildur Gunnarsdóttir, íslenskufræðingur. Á sýningunni eru níu handrit úr safni Árna Magnússonar (1663 - 1730) handritasafnara og prófessors við Kaupmannahafnarháskóla.

Í máli og myndum eru nemendur fræddir um munnlega geymd sagna- og kvæðaarfsins, um ritun og gerð íslenskra miðaldahandrita og varðveislu þeirra fram á okkar daga. Fjallað er um bókmenntir, sögu og menningarlíf þjóðarinnar, bókagerðina sjálfa, þ.e. handverkið við gerð miðaldahandrita; verkun kálfskinns í bókfell, blekgerð og liti; ólíkar leturgerðir og þróun skrifleturs, myndlýsingar o.fl. auk fjaðurpennaskurðar eins og hann tíðkaðist fyrr á öldum. Skýringardæmi sýna ólíkar leturgerðir í miðalda- og síðari tíma handritum og sérstaka rittækni skrifaranna, þ.e. skammstafanir, styttingar og bönd og gefa þau nemendum tækifæri til að spreyta sig við lestur fornra texta. Með því kynnast nemendur af eigin raun hversu lítið íslensk tunga hefur breyst í aldanna rás en að auki fá þeir stuttlega kynningu á ritmenningu forfeðranna þegar rúnir voru ritmál þeirra. Nemendum gefst síðan tækifæri til að tylla sér niður við langborð tvö og skrifa á kálfskinn með tilskornum fjaðrapennum og bleki soðnu úr sortulyngi, sortu, krækiberjum og grávíðileggjum.

     

Í þessum skáp eru geymd tæki og tól og annað sem til þarf í handritagerð.

 

 

 

 

Kennarar geta undirbúið heimsóknina með nemendum með því að skoða vefsíðuna Handritin heima, sem er fræðsluvefur um íslensk handrit, en höfundar hans eru Laufey Guðnadóttir og Soffía Guðný Guðmundsdóttir. Hluti efnisins á vefnum var unninn í nánu samstarfi við safnkennara Árnastofnunar þar sem efnið, sem miðlað er til nemenda með safnfræðslunni, var lagt til grundvallar.

Einnig er kennurum og nemendum bent á Handritavefinn sem geymir fjöldann allan af stafrænum myndum af íslenskum og norrænum skinnhandritum frá miðöldum og pappírshandritum eftir siðaskiptin auk annars fróðleiks um þau handrit sem þegar hafa verið skráð og mynduð.

Skyggnst í söguna - Myndirnar hér að neðan sýna áhugasama nemendur Iðnskólans í Reykjavík spreyta sig við skriftir í "miðaldaskrifarastofu" handritasýningarinnar.  „Nemendur á Upplýsinga- og fjölmiðlabraut skólans leggja stund á letursögu og læra sitt af hverju um þróun leturs og letrunar frá því að forsögulegir forfeður byrjuðu að tjá sig á hellisveggjum til þess að farið var að nota ýmis verkfæri til að skrifa með. Meðal annars leggja nemendur stund á letrun, öðru nafni skrift, með skrautskriftarpennum. Nokkra undanfarna daga hafa nemendur ásamt kennurum farið í Þjóðmenningarhúsið og skoðað þar handritasýningu undir skemmtilegri og fróðlegri leiðsögn Svanhildar Gunnarsdóttur safnkennara hjá Árnastofnun. Hluti heimsóknarinnar fólst í að fá að æfa skrift með fjöðrum á skinnbúta, í anda Snorra og annarra skrifara fortíðar.” (Myndir og texti: Haukur Már Haraldsson, kennari við IR.)