Saga og bókmenntir í handritum |
Siglingar og landafundir norrænna manna Á víkingaöld (um 800-1050) voru Skandínavar ein mesta siglingaþjóð í Evrópu. Þeir sigldu á knörrum og reru langskipum, og fóru ýmist með ófriði eða stunduðu verslun. Sums staðar settust þeir um kyrrt í hernumdum löndum og stofnuðu sjálfstæð víkingaríki. Svíar herjuðu í austurveg um Eystrasalt, sigldu upp eftir ám og stofnuðu Garðaríki á Rússlandi; höfuðstaðir voru Hólmgarður og Kænugarður, sem nú heita Novgorod og Kiev. Danir og Norðmenn fóru í vesturveg, stofnsettu víkingaríki í kringum Jórvík á Englandi austanverðu, í Orkneyjum, í kringum Dyflinni á Írlandi og í Normandí á Frakklandi með höfuðstað í Rúðuborg, nú Rouen. Í þessum löndum runnu norrænir menn saman við innfædda og týndu smám saman tungu sinni og þjóðerni. Áhrifa þeirra gætir þó enn víða í örnefnum og norrænt mál, norn, var talað á skosku eyjunum fram á 18. öld. Varanlegast varð landnám norrænna manna þar sem þeir hittu fyrir mannauð eða fábyggð lönd, í Færeyjum, á Íslandi og Grænlandi. Forn víkingaskip hafa fundist í Noregi og Danmörku, sæmilega varðveitt í jörðu og sjó. Eftirlíkingar sem gerðar hafa verið í nútíðinni sanna hve þau hafa verið góðir farkostir. Stílfærðar myndir í íslenskum handritum sýna að lag skipanna hefur haldist fram eftir öldum. Landnám Íslands - Þjóðveldið Norrænir menn byggðu Ísland á síðara hluta níundu aldar og fyrra hluta hinnar tíundu, bæði frá Noregi og norrænum byggðum á Bretlandseyjum þaðan sem þeir fluttu með sér eiginkonur og þræla. Þegar Ísland var albyggt orðið, um 930, stofnuðu landnemarnir og afkomendur þeirra eitt ríki í landinu. Æðstu völd voru þá í höndum 39 bændahöfðingja, goða. Þing voru haldin á vorin í hverju héraði. Þar voru dómar dæmdir og ráðið fram úr ýmsum málum innan héraðs. Síðan komu höfðingjar og með þeim fjöldi fólks úr öllum stéttum saman til allsherjarþings, Alþingis, sem haldið var í tvær vikur á Þingvöllum við Öxará þegar sól var hæst á lofti. Nánar um Landnámu og AM 107 fol. (Sturlubók Landnámu). Alþingi - Hin fornu lög, Grágás Alþingi var áhrifamikil samkoma þótt það starfaði aðeins tvær vikur á ári. Lögrétta, skipuð héraðshöfðingjunum, hafði það hlutverk að setja ný lög og endurbæta frumlögin. Dómstólar voru fjórir, einn fyrir hvern landsfjórðung. Snemma var bætt við sérstökum fimmtardómi sem var einskonar hæstiréttur fyrir allt landið. Landnám Grænlands Á fyrstu öldinni eftir landnámið áttu Íslendingar enn mikinn skipaflota og á seinna hluta 10. aldar héldu þeir áfram í vestur í leit að nýjum löndum. Eiríkur rauði fann land sem hann nefndi Grænland "og kvað menn það myndu fýsa þangað farar að landið ætti nafn gott", segir Ari fróði. Á næstu árum fluttust margir Íslendingar til Grænlands og reistu þar byggð sem blómgaðist vel framan af. Íbúar munu hafa verið um 4-6 þúsund þegar best lét. Fundur Vínlands Í Grænlendingasögu og Eiríkssögu rauða er sagt frá fundi Vínlands hins góða. Bjarni Herjólfsson og Leifur heppni, sonur Eiríks rauða, eru hvor um sig sagðir hafa fundið þrjú lönd sem nefnd voru Vínland, Markland og Helluland. Helluland og Markland hafa líklega verið Baffinsland og Labradorskaginn. Vínland virðist hafa verið sunnan við St. Lawrence flóann, líklega í New Brunswick. Húsarústir og aðrar minjar um norræna menn hafa fundist í L'Anse aux Meadows á norðurodda Nýfundnalands, og mun þar hafa verið viðkomustaður á leiðinni milli Grænlands og Vínlands. Þorfinnur karlsefni reyndi að nema land á Vínlandi en varð að hörfa þaðan eftir þrjú ár vegna ófriðar innfæddra og gerðist síðan bóndi á Glaumbæ í Skagafirði ásamt Guðríði konu sinni og syninum Snorra, fyrsta hvíta manninum sem fæddist á meginlandi Norður Ameríku. Eddukvæði - Konungsbók Eddukvæðin eru að mestum hluta aðeins varðveitt í einu handriti sem nefnt er Konungsbók Eddukvæða eða á latínu Codex Regius af því að það var lengi varðveitt í Konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn. Brynjólfur biskup Sveinsson sendi konungi bókina 1662 og var hún afhent vorið 1971 ásamt Flateyjarbók. Voru þetta fyrstu handritin af um 1800 sem voru flutt til Íslands frá Danmörku. Goðafræðin - Snorra-Edda Snorra-Edda er fræðslurit um íslenskan skáldskap, tekin saman af Snorra Sturlusyni (1179-1241). Skáldskaparmálið var byggt á goðsögnum sem Snorri segir til skýringar á fornum kenningum og því varð Snorra-Edda jafnframt meginheimild um hinn forna átrúnað norrænna manna. Dróttkvæði - Egill Skallagrímsson Dróttkvæði eru önnur aðalgrein íslenskra fornkvæða, við hlið Eddukvæða, en eru miklu formfastari en þau, fjalla um samtímann eða nýliðna viðburði og eru eignuð nafnkenndum skáldum. Dróttkvæði hafa líklega fyrst verið ort af norrænum skáldum á seinna hluta 9. aldar en kvæðagreinin blómgaðist síðan einkum í höndum íslenskra skálda. Þegar ungir Íslendingar komu til annarra landa gengu þeir á fund jarla og konunga og fluttu þeim lofkvæði en þágu að launum fé og vegsemdir. Í annan stað vörpuðu skáldin fram vísum við ýmis tækifæri, og er fjöldi slíkra lausavísna varðveittur í sögum. Heilög ritning - Stjórn Bækur bárust fyrst til Íslands með kristinni trú sem lögfest var á Alþingi árið 1000: latínubækur,heilög rit hinnar kaþólsku kirkju, skráðar með fjaðrapenna á skinn. Biskupssetrin tvö, Skálholt á Suðurlandi og Hólar fyrir norðan, voru helstu menntastöðvar landsins uns Reykjavík tók að eflast seint á 18. öld. Klaustur voru stofnuð víðs vegar um landið og mörg höfðingjasetur voru einnig stöðvar lærdóms og mennta. Konungasögur - Snorri Sturluson Íslendingar rituðu ekki aðeins sögu síns eigin lands heldur og nálægra landa: Noregs, Danmerkur, Færeyja, Orkneyja og Grænlands. Mest kveður að sögum Noregskonunga sem eru margar og fjölbreytilegar, ritaðar á 12. og 13. öld. Sturlungasaga - Biskupasögur Ari fróði Þorgilsson ritaði fyrstur manna sögurit á íslensku en eftir hann rak hvert sagnaritið annað og til urðu margar og fjölbreytilegar bókmenntategundir. Hetjuöld Íslands - Íslendingasögur Íslendingasögur eru varðveittar í handritum frá 13. öld og þó einkum frá 14. og 15. öld en eru sagðar gerast á landnámsöld og fram um miðja 11. öld. Alls eru varðveittar um 40 sögur auk styttri þátta, allar án höfundarnafns. Sögurnar byggja bæði á munnlegri, innlendri frásagnarlist og þeim aðferðum við sagnaritun sem menn lærðu í skólum kirkjunnar og þróuðust við ritun samtímasagna: konunga- og biskupasagna og Sturlungu. Þær eru raunsæilegar á ytra borði og ekki er sagt annað en það sem einhver gæti hafa séð eða heyrt. Frásögnin er gagnorð og laus við málskrúð og útúrdúra, persónur margar og fjölbreyttar eins og í lífinu sjálfu. Margar Íslendingasögur snúast um átök og hefndir og vanda manna við að lifa með sæmd. Ýmist er sagt frá mörgum kynslóðum, ævi aðalhetju, heilum héruðum eða hópi manna. Þá leika konur og ástir stórt hlutverk í sumum sögum. Hetjur Íslendingasagna eru oftast synir frjálsra bænda eða goða og gerast stundum hirðskáld konunga og frægir víkingar. Brennu-Njálssaga Brennu-Njálssaga (Njálssaga, Njála) er mest og frægust allra Íslendingasagna. Höfundur hennar hefur stuðst við munnmælasagnir og eldri ritaðar heimildir en jafnframt stælt eldri sögur og notað þær í nýju samhengi. Í Njálu er miklu efni saman þjappað, sumar persónur ýktar og sumir atburðir reyfaralegir. Höfundur dáist að og ann sumu sögufólki sínu en hefur fyrirlitningu á öðru, og þar á milli er fjöldinn sem fær samúð hans eða andúð í misjöfnum skömmtum. En þó eru allir viðburðir rökvíslega undirbyggðir, stundum með löngum aðdraganda, og allar mannlýsingar eru skarpar, hinar dökku með nokkru ljósi en engin svo björt að hún skýrist ekki af einhverjum skuggum. Fáar sögur í samanlögðum bókmenntum heimsins eiga þvílíkan fjölda ljóslifandi einstaklinga, þvílíka fjölbreytni í lýsingum og þvílíka speki í boðskap. Erlend stjórn - Jónsbók Íslendingar gengu á hönd Hákoni gamla Noregskonungi 1262, og sonur hans Magnús, sem kallaður var "lagabætir", setti þeim ný lög sem sniðin voru við hæfi konungsvalds og nýrra tíma í Evrópu. Hin nýja lögbók var nefnd Jónsbók eftir lagasmiðnum sem flutti hana til Íslands. Hún gilti öldum saman og handrit hennar skipta hundruðum. Mörg Jónsbókarhandrit eru fagurlega myndskreytt, svo sem Skarðsbók. Sum ákvæði Jónsbókar gilda enn í dag, til dæmis ákvæðin um það er hvali, timbur eða annað ágæti rekur að ströndinni. |




Sjá fleiri gagnasöfn




Fyrirspurn
Veftré
English
Skandinavisk