Flýtileiðir á vef Stofnun íslenskra fræða:


Alþjóðlegur sumarskóli í handritafræðum

Alþjóðlegur sumarskóli í handritafræðum er á vegum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Den Arnamagnæanske Samling í Kaupmannahöfn í samvinnu við Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn og háskólana í Tübingen, Zürich og Cambridge. Sumarið 2012 er námskeiðið haldið í Kaupmannahöfn en annað hvert ár fer það fram í Reykjavík.