Á handritasviði stofnunarinnar er unnið að ýmiss konar fræðilegum og hagnýtum verkefnum |
Varðveisla
Handritasafnið er varðveitt við bestu skilyrði og áhersla lögð á eflingu þess, viðhald og skráningu.
Rannsóknir Rannsóknir eru stundaðar á textum handritanna oft í samstarfi við aðra sem sinna verkefnum á sviði handritafræða Nám í handritafræðum Sérfræðingar Árnastofnunar í handritafræðum hafa ekki kennsluskyldu, en þeir hafa innt af höndum stundakennslu við Háskóla Íslands í þjóðfræðum, sagnfræði, bókmenntum fyrri alda, málsögu, textafræði og handritalestri, enda er jafnan allmikill fjöldi stúdenta sem leggur sig eftir íslenskum fræðum fyrri alda. Alþjóðlegur sumarskóli í handritafræðum. Útgáfa Fjölmargar textaútgáfur og fræðirit eru í vinnslu en einnig koma út ljósprentanir á handritum og tímaritið Gripla. Ljósmyndun Unnið er að stafrænni myndatöku handritanna og myndapantanir afgreiddar samkvæmt beiðnum. Kynning Handritasýning stofnunarinnar er í Þjóðmenningarhúsi v/Hverfisgötu í Reykjavík og er boðið upp á leiðsögn um sýninguna og einnig er þar tekið á móti skólahópum undir leiðsögn safnkennara.
Stofustjóri:
Svanhildur Óskarsdóttir
Annað starfsfólk og fræðimenn með fasta rannsóknaraðstöðu:
Doktorsnemar með rannsóknaraðstöðu: |




Sjá fleiri gagnasöfn




Fyrirspurn
Veftré
English
Skandinavisk