|
Íslensk málnefnd var stofnuð 1964. Hún starfar nú samkvæmt 6. grein laga nr. 61/2011, um Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum: Ráðherra skipar Íslenska málnefnd og er skipunartími nefndarinnar fjögur ár. Í Íslenskri málnefnd eiga sæti 16 menn. Auk þess er nefndinni heimilt að bjóða mönnum, einum eða tveimur, setu í nefndinni ef hún telur það nefndarstarfinu til gagns. Hver eftirtalinna tilnefnir einn mann í málnefndina: Ríkisútvarpið, Þjóðleikhúsið, Samtök móðurmálskennara, Rithöfundasamband Íslands, Blaðamannafélag Íslands, Íðorðafélagið fyrir hönd orðanefnda, Bandalag þýðenda og túlka, Staðlaráð Íslands, Upplýsing, félag bókasafns- og upplýsingafræðinga, Hagþenkir og Samband íslenskra sveitarfélaga. Samstarfsnefnd háskólastigsins tilnefnir tvo menn í málnefndina. Ráðherra skipar tvo nefndarmenn án tilnefningar og skal annar vera formaður og hinn varaformaður. Velferðarráðherra tilnefnir þar að auki einn fulltrúa úr röðum innflytjenda. Íslensk málnefnd skiptir með sér verkum.
Hlutverk Íslenskrar málnefndar er að veita stjórnvöldum ráðgjöf um málefni íslenskrar tungu á fræðilegum grundvelli og gera tillögur til ráðherra um málstefnu, auk þess að álykta árlega um stöðu íslenskrar tungu. Málnefndin getur átt frumkvæði að ábendingum um það sem vel er gert og það sem betur má fara við meðferð íslenskrar tungu á opinberum vettvangi. Íslensk málnefnd semur íslenskar ritreglur sem gilda m.a. um stafsetningarkennslu í skólum og ráðherra gefur út. Grundvallarbreytingar á ritreglum eru háðar samþykki ráðherra.
Íslensk málnefnd er þannig skipuð, tímabilið 1. nóvember 2010 til 31. október 2014: Framkvæmdastjórn Íslenskrar málnefndar er þannig skipuð: Guðrún Kvaran formaður, gkvaran [hjá] hi.is, Haraldur Bernharðsson varaformaður, haraldr [hjá] hi.is, Sigríður D. Þorvaldsdóttir, Anna Sigríður Þráinsdóttir, Eiríkur Rögnvaldsson. |





Fyrirspurn
Veftré
English
Skandinavisk