Málstefna |
Málstefna lýtur annars vegar að stöðu tiltekins tungumáls gagnvart öðrum málum, þ.e. við hvaða aðstæður unnt er að nota tiltekið mál, og hins vegar að formi þess, þ.e. hvernig tungumálið er notað. Í öllum málsamfélögum ríkir einhvers konar málstefna og þá er ekki aðeins átt við sýnilega stefnumörkun og aðgerðir, sem ætlað er að hafa áhrif á stöðu eða form tungumáls, heldur er hér jafnframt átt við viðhorf og hugmyndir fólks um mál og málnotkun í tilteknu málsamfélagi. |




Sjá fleiri gagnasöfn




Fyrirspurn
Veftré
English
Skandinavisk