Flýtileiðir á vef Stofnun íslenskra fræða:


Samstarf


1) Almenn málrækt

EFNIL
EFNIL eru Samtök evrópskra málræktarstofnana sem stofnuð voru í október 2003. Þau sinna málefnum þjóðtungna Evrópuríkja. Íslensk málnefnd hefur verið aukaaðili að samtökunum frá 25. nóvember 2005.

Íslensk málnefnd
Hlutverk Íslenskrar málnefndar er að veita stjórnvöldum ráðgjöf um málefni íslenskrar tungu og gera tillögur til menntamálaráðherra um málstefnu, auk þess að álykta árlega um stöðu íslenskrar tungu. Málnefndin getur átt frumkvæði að ábendingum um það sem vel er gert og það sem betur má fara við meðferð íslenskrar tungu á opinberum vettvangi.

MS
Íslensk málnefnd og Málstöðin hafa átt langt og gott samstarf við Mjólkursamsöluna, m.a. hvað varðar fernuflug á mjólkurfernum og málræktarþing Íslenskrar málnefndar.


Námsgagnastofnun
Í febrúar 2005 kom út á vef Námsgagnastofnunar upplýsinga- og verkefnaritið  Íslenska - málið þitt eftir Ara Pál Kristinsson. Málræktarsviðið hafði einnig samstarf við Námsgagnstofnun um nýyrðaverkefnið Nýyrði vantar!


Samstarfsnet norrænna málnefndaskrifstofa
Norrænar málnefndaskrifstofur hafa með sér samstarf og hittast einu sinni á ári. Nordisk sprogkoordination heldur utan um samstarf málnefndanna. Nordisk Sprogkoordination sér um átakið Nordisk Sprogkampagne sem styrkt er af Norræna ráðherraráðinu (Nordisk Ministerråd).

 




2) Íðorð

EAFT
EAFT (European Association for Terminology) eru evrópsk íðorðasamtök sem stofnuð voru 1996. Á vegum EAFT hafa verið haldnar alþjóðlegar ráðstefnur um íðorðafræði.

Infoterm

Infoterm (the International Information Centre for Terminology) er alþjóðleg upplýsingamiðstöð fyrir íðorðafræði í Vín. Infoterm var stofnað 1971.


Nordterm
Nordterm eru samtök stofnana og félaga á Norðurlöndum sem fást við íðorðastöf, kennslu og rannsóknir. Meginmarkmið Nordterm er að vera norrænn upplýsingamiðill fyrir íðorðastarfsemi.

Mikilvægast í starfsemi Nordterm er Nordterm-þingið sem kemur saman annað hvert ár. Þing Nordterm er opið öllum sem áhuga hafa á íðorðafræði á Norðurlöndum. Þing Nordterm er að jafnaði haldið annað hvert ár. Í tengslum við þing Nordterm er haldin norræn íðorðaráðstefna og oftast einnig námskeið.

TermNet
TermNet (the International Network for Terminology), alþjóðlegt net í íðorðafræði, var stofnað 1988. TermNet gefur út fréttabréfið TermNet News.

Termdist
Málræktarsviðið tók árið 2005 höndum saman við nokkrar háskólastofnanir og fleiri aðila á Norðurlöndum um samnorrænt tilraunverkefni um fjarkennslu í íðorðafræði. Námið er hugsað sem framhaldsmenntun á MA-stigi. Verkefnið, sem nefnist TERMDIST, fékk styrk frá Nordplus Språk við úthlutun 2005. Að verkefninu standa, auk málræktarsviðs Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum,  Stokkhólmsháskóli, CBS (Verslunarháskólinn í Kaupmannahöfn), Syddansk universitet, Háskólinn í Vasa í Finnlandi (Institutionen för kommunikationsforskning og Institutionen för nordiska språk), Norges Handelshøyskole og Terminilogicentrum TNC í Svíþjóð.

Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytis

Styrkir

Málræktarsjóður
Meginmarkmið Málræktarsjóðs er að beita sér fyrir og styðja hvers konar starfsemi til eflingar íslenskri tungu og varðveislu hennar