Málnefnd um íslenskt táknmál |
Málnefnd um íslenska táknmálið
Hlutverk málnefndar um íslenska táknmálið er að stuðla að eflingu íslensks táknmáls, notkun þess í íslensku þjóðlífi, styrkja stöðu þess og virðingu og beita sér fyrir aðgerðum til varðveislu þess. Í þessu felst m.a. að vinna að samræmi í táknanotkun og annarri stöðlun íslensks táknmáls sem tjáningarmiðils eftir því sem eðlilegt þykir og skynsamlegt getur talist. Málnefnd um íslenskt táknmál er ætlað að vera stjórnvöldum til ráðuneytis um hvað eina er varðar íslenskt táknmál, til að mynda skal leita umsagnar málnefndarinnar áður en settar eru reglugerðir eða annars konar fyrirmæli um íslenskt táknmál að svo miklu leyti sem einstök atriði heyra ekki undir aðra samkvæmt öðrum lögum. Um málstefnu og stöðu íslensks táknmáls skal leitað samvinnu við málnefnd um íslenskt táknmál, sbr. 7. gr. Skrifstofa málnefndar um íslenskt táknmál er í Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Ráðherra setur reglugerð um nánari starfsemi málnefndar um íslenskt táknmál.
Málnefnd um íslenska táknmálið er þannig skipuð, tímabilið 28. október 2011 til 31. október 2015:
Valgerður Stefánsdóttir formaður, vala@shh.is
Varamenn |




Sjá fleiri gagnasöfn




Fyrirspurn
Veftré
English
Skandinavisk