Í september 2006 tók málræktarsvið Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum við rekstri málfarsbankans af Íslenskri málstöð.
Í málfarsbankanum er hægt að slá inn leitarorð sem lúta að málnotkun og finna úrlausnir sem teknar hafa verið saman í Íslenskri málstöð og síðar arftaka hennar málræktarsviði Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Með þessu verða leiðbeiningar stofnunarinnar um mál og málnotkun enn aðgengilegri en áður. Nú eru í málfarsbankanum nærri því 8000 flettugreinar (málfarsábendingar og úrlausnir) og stöðugt eru nýjar að bætast við.
Ítarlegri texti um málfarsbankann og sögu hans.
Umsjónarmaður málfarsbankans er Jóhannes B. Sigtryggsson, johans [hjá] hi.is.
|