Flýtileiðir á vef Stofnun íslenskra fræða:


Beiðni um breytingu á nafni býlis

Beiðni um breytingu á nafni býlis skal senda til örnefnanefndar, skv. lögum um bæjanöfn o.fl., nr. 35/1953, með síðari breytingum. Beiðni verður að fylgja vottorð sýslumanns um eignarrétt málsaðila á býlinu (t.a.m. staðfest ljósrit úr fasteignabók eða þinglýst afsal).

Athuga ber að úrskurðarsvið örnefnanefndar nær aðeins til lögbýla og ýmissa annarra býla þar sem fólk á lögheimili. Nefndin vísar frá sér án úrskurðar erindum um nöfn á t.d. sumarbústöðum eða óbyggðum lóðum og landspildum þar sem hvorki hefur verið stofnað lögbýli né lögheimili.

Eyðublað má nálgast hér (PDF-skjal, 61 KB).