Flýtileiðir á vef Stofnun íslenskra fræða:


Tilkynning um nafn nýbýlis

Tilkynningu um nafn nýbýlis skal senda til örnefnanefndar, skv. lögum um bæjanöfn o.fl., nr. 35/1953, með síðari breytingum. Tilkynningunni verður að fylgja

  1. vottorð sýslumanns um eignarrétt málsaðila á býlinu (t.a.m. staðfest ljósrit úr fasteignabók eða þinglýst afsal)
  2. afrit af leyfisbréfi ráðherra til stofnunar nýbýlis


Athuga ber að úrskurðarsvið örnefnanefndar nær aðeins til lögbýla og ýmissa annarra býla þar sem fólk á lögheimili. Nefndin vísar frá sér án úrskurðar erindum um nöfn á t.d. sumarbústöðum eða óbyggðum lóðum og landspildum þar sem hvorki hefur verið stofnað lögbýli né lögheimili.


Eyðublað má nálgast hér (PDF-skjal, 45 KB).