Í örnefnasafni Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum eru geymdar skrár yfir örnefni á flestum jörðum á Íslandi. Elsta skráin er úr fórum Brynjúlfs Jónssonar frá Minna-Núpi og er dagsett 29. október 1910. Hana gerði nafni hans Bjarnason yfir jörðina Framnes á Skeiðum.
Skrárnar skipta þúsundum en margar eru enn sem komið er aðeins til vélritaðar. Unnið er að því á vegum stofnunarinnar að koma skrám á stafrænt form og er dálítill hluti þegar kominn í gagnagrunn, Sarp. Hægt er að leita í þessum gagnagrunni á Nafnfræðisviði eða skoða skrárnar sjálfar í vélriti.
Örnefnasafn er mikið notað af almenningi og fræðimönnum, bæði fólki sem byggir jarðir eða tengist þeim á annan hátt, sumarhúsafólki, ferðamönnum, sagnfræðingum, málfræðingum, landfræðingum, þjóðfræðingum og mörgum öðrum. |