Sýslu- og sóknalýsingar Hins íslenska bókmenntafélags |
|
Sýslu- og sóknalýsingar Hins íslenska bókmenntafélags eru merkilegar heimildir um sögu Íslands, mannlíf, örnefni, náttúru og fleira. Bókmenntafélagið átti frumkvæði að þessum lýsingum fyrir miðja nítjándu öld og þær eru enn að birtast á prenti. Síðustu bindin hafa verið gefin út sameiginlega af Sögufélagi og Örnefnastofnun Íslands. Nýjasta bókin (2007) er endurútgáfa af lýsingum Gullbringu- og Kjósarsýslu. Sögufélag annast umboðssölu. Rangárvallasýsla. Sýslu- og sóknalýsingar Hins íslenzka bókmenntafélags 1839-1845, 1856 og 1872-1873. [Árni Böðvarsson sá um útgáfuna.] Rangæingafélagið í Reykjavík 1968. 284 bls. [Vestmannaeyjar.] Útskýringartilraun yfir Vestmannaeyjar, eftir séra Jón Austmann 1843. Í: Þorkell Jóhannesson: Örnefni í Vestmannaeyjum. Hið íslenzka þjóðvinafélag. Reykjavík 1938, bls. 109-162. [Endurprentun í ritinu Eyjaskinna. Fylgirit I. Sögufélag Vestmannaeyja 1988, bls. 35-88.] Lýsing Vestmannaeyja sóknar eftir Brynjólf Jónsson 1873. Hið íslenska fræðafjelag. Kaupmannahöfn 1918. 66 bls. [Endurprentun í ritinu Eyjaskinna. Fylgirit I. Sögufélag Vestmannaeyja 1988, bls. 103-154.] Árnessýsla. Sýslu- og sóknalýsingar Hins íslenska bókmenntafélags 1839-1843 og Lýsing Ölfushrepps anno 1703 eftir Hálfdan Jónsson. Svavar Sigmundsson sá um útgáfuna. Sögufélag. Reykjavík 1979. 278 bls. [Úr lýsingu Árnesssýslu 1842. Sjá Landnám Ingólfs. Safn til sögu þess III:35-45; Lýsing Þingvallaprestakalls 1840, Lýsing Arnarbælisþinga 1840 og Lýsing Selvogsþinga 1840. Sjá Landnám Ingólfs. Safn til sögu þess III:57-122.] Gullbringu- og Kjósarsýsla. Sýslu- og sóknalýsingar Hins íslenska bókmenntafélags 1839-1855. Guðlaugur R. Guðmundsson og Svavar Sigmundsson sáu um útgáfuna. Ný útgáfa. Sögufélag 2007. Sýslulýsingar og sóknalýsingar. Landnám Ingólfs. Safn til sögu þess III. [Guðni Jónsson sá um útgáfuna.] Félagið Ingólfur gaf út. Reykjavík 1937-39. 292 bls. Mýra- og Borgarfjarðarsýslur. Sýslu- og sóknalýsingar Hins íslenska bókmenntafélags 1839-1873. Guðrún Ása Grímsdóttir og Björk Ingimundardóttir sáu um útgáfuna. Sögufélag. Örnefnastofnun Íslands. Reykjavík 2005. 338 bls. [Snæfells- og Hnappadalssýsla.] Sýslu- og sóknalýsingar Hins íslenzka bókmenntafélags. Svavar Sigmundsson og Ólafur Halldórsson sáu um útgáfuna. Snæfellsnes III. Snæfellingaútgáfan. Reykjavík 1970. 352 bls. Dalasýsla. Sýslu- og sóknalýsingar Hins íslenska bókmenntafélags 1839-1855. Einar G. Pétursson sá um útgáfuna. Örnefnastofnun Íslands í samvinnu við Sögufélag. Reykjavík 2003. 208 bls. [Sóknalýsing Miðdalaþinga birtist í Sunnudagsblaði Tímans, 12. árg. 1973, bls. 748-750.] Barðastrandarsýsla. Sóknalýsingar Vestfjarða. I. Samband vestfirzkra átthagafélaga. 1952. 282 bls. [Ólafur Lárusson sá um útgáfuna.] Ísafjarðar- og Strandasýslur. Sóknalýsingar Vestfjarða. II. Samband vestfirzkra átthagafélaga. 1952. 310 bls. [Ólafur Lárusson sá um útgáfuna.] [Lýsing Ísafjarðarsýslu 1839 eftir Þorkel Gunnlaugsson og Lýsing Strandasýslu 1848, a.m.k. að hluta til eftir Kristján Magnúsen á Skarði á Skarðsströnd, birtust í Ársriti Sögufélags Ísfirðinga 2005, bls. 47-74, með aðfararorðum útgefanda, Guðrúnar Ásu Grímsdóttur, ásamt tveimur uppdráttum sókna í Strandasýslu.] Húnavatnssýsla. Sýslu- og sóknalýsingar Hins íslenzka bókmenntafélags 1839-1873. Safn til landfræðisögu Íslands I. Jón Eyþórsson bjó til prentunar. Bókaútgáfan Norðri. Akureyri 1950. 188 bls. Skagafjarðarsýsla. Sýslu- og sóknalýsingar Hins íslenzka bókmenntafélags 1839-1873. Safn til landfræðisögu Íslands II. Pálmi Hannesson og Jakob Benediktsson bjuggu til prentunar. Bókaútgáfan Norðri. Akureyri 1954. 204 bls. [Sýslulýsing yfir Skagafjarðarsýslu 1863-72 eftir Eggert Briem birtist í Skagfirðingabók. Rit Sögufélags Skagfirðinga, XI. árg. 1982, bls. 9-55, í útgáfu Ögmundar Helgasonar.] [Eyjafjarðarsýsla.] Sýslu- og sóknalýsingar Hins íslenzka bókmenntafélags 1839-1854. Eyfirzk fræði II. Magnús Kristinsson sá um útgáfuna. Sögufélag Eyfirðinga. Akureyri 1972. 230 bls. Þingeyjarsýslur. Sýslu- og sóknalýsingar Hins íslenska bókmenntafélags 1839-1844. Ritnefnd: Björn Hróarsson, Heimir Pálsson og Sigurveig Erlingsdóttir. Gott mál hf. Reykjavík 1994. 344 bls. [Aðaldalur. Brot af sóknalýsingum Hins íslenzka bókmenntafélags 1839-1843. Grenjaðarstaða-, Þverár-, Múla- og Nessóknir. Útgefendur: Nokkrir Aðaldælir. 1980. 80 bls.] Múlasýslur. Sýslu- og sóknalýsingar Hins íslenska bókmenntafélags 1839-1874. Finnur N. Karlsson, Indriði Gíslason og Páll Pálsson sáu um útgáfuna. Sögufélag. Örnefnastofnun Íslands. Reykjavík 2000. 640 bls. [Lýsing Hofssóknar í Vopnafirði 1840, Lýsing Hallormsstaðarsóknar 1874 og Lýsing Hólmasóknar í Reyðarfirði 1843 birtust í ritinu Austurland. Safn austfirzkra fræða. Útgefandi: Sögusjóður Austfirðinga. Akureyri 1947; Lýsing Skeggjastaðasóknar birtist í Kirkjuritinu, 3. h. 1975, bls. 175-186, í útgáfu síra Sigmars I. Torfasonar.] Skaftafellssýsla. Sýslu- og sóknalýsingar Hins íslenska bókmenntafélags 1839-1873. Jón Aðalsteinn Jónsson og Svavar Sigmundsson sáu um útgáfuna. Sögufélag. Reykjavík 1997. 296 bls. |




Sjá fleiri gagnasöfn




Fyrirspurn
Veftré
English
Skandinavisk