Á orðfræðisviði stofnunarinnar er unnið að ýmiss konar fræðilegum og hagnýtum verkefnum sem snerta íslenskt mál og íslenskan orðaforða.
Rannsóknir
Áhersla er lögð á rannsóknir sem tengjast orðum og orðasamböndum, rannsóknir á orðaforðanum og þróun hans, rannsóknir í orðabókafræðum og tungutækni.
Heimildir um íslenskan orðaforða
Orðfræðisvið varðveitir söfn Orðabókar Háskólans og annast frekari heimildasöfnun um orð og orðanotkun í rituðu og töluðu máli. Söfnin geyma mikilvægar heimildir um orðaforðann og þau eru aðgengileg fyrir fræðimenn og almenning, m.a. í opnum gagnasöfnum á vef stofnunarinnar. Unnið er að því að þróa nýjar aðferðir við efnisöflun og úrvinnslu.
Orðabækur
Unnið er að verkefnum á sviði orðabókagerðar og orðabókafræði, bæði fræðilegum og hagnýtum. Stofnunin er í forystu um nýjungar í orðabókagerð, þ.á m. við gerð rafrænna orðabóka.
Máltækni
Lögð er stund á ýmis hagnýt og fræðileg verkefni á sviði mátækni sem styðja málrannsóknir, orðabókagerð og þróun máltæknibúnaðar og nýtast bæði innan og utan stofnunarinnar. Orðabók Háskólans varð snemma í forystu um nýtingu tölvutækni við rannsóknir og orðabókagerð og stofnunin heldur áfram þeim verkum sem þar var unnið að.
Orðavinda
|