Íslenskar orðabækur

Stofnunin er bakhjarl fyrir orðabókagerð á Íslandi. Í söfnum Orðabókar Háskólans eru varðveittar mikilvægar heimildir um íslenskan orðaforða og þau hafa verið nýtt við gerð fjölmargra orðabóka.  Starfsmenn stofnunarinnar búa yfir mikilli þekkingu og reynslu af gerð orðabóka af ýmsu tagi og þeir stunda margvíslegar rannsóknir á sviði orðabókafræði.

Orðabók Háskólans gaf út fjölmargar orðabækur. Þar má nefna Íslenska orðsifjabók (1989) eftir Ásgeir Blöndal Magnússon, sem lengi var starfsmaður og síðast forstöðumaður Orðabókarinnar, og  Íslenska orðtíðnibók (1991) sem var mikið tímamótaverk. Þá stóð Orðabókin fyrir endurútgáfu nokkurra merkra íslenskra orðabóka frá fyrri tíð í ritröðinni Orðfræðirit fyrri alda.

Sérfræðingar á stofnuninni hafa einnig samið eða átt aðild að samningu og endurskoðun fjölmargra orðabóka sem aðrir hafa gefið út. Þar má nefna nýstárlegar orðabækur Jóns Hilmars Jónssonar, Orðastað (1994/2001), Orðaheim (2002) og Stóru orðabókina um íslenska málnotkun (2005) sem var gefin út í rafrænu formi á geisladiski samhliða prentuðu útgáfunni. Sérfræðingur frá Orðabók Háskólans, Kristín Bjarnadóttir, kom einnig að endurskoðun og nýjustu útgáfu Íslenskrar orðabókar (3. útgáfa 2002) og átti sæti í ritstjórn hennar.