Flýtileiðir á vef Stofnun íslenskra fræða:


Rannsókn á orðabókanotkun og orðabókamenningu á Íslandi


Markmið verkefnisins er að kanna hvernig orðabókanotendur nýta sér íslenskar orðabækur við mismunandi aðstæður. Sjónum er beint að nokkrum hópum notenda: íslenskum og erlendum háskólanemum í íslensku og móðurmálskennarum. Áhersla er lögð á stórar einmála orðabækur um íslensku og skoðað hvers konar orðabækur notendur leita í við tilteknar aðstæður og í hvaða tilgangi.

Viðfangsefnið er skoðað frá nokkrum hliðum og beitt er mismunandi aðferðum. Til að fá yfirlit yfir þarfir og hegðun orðabókanotenda eru lagðar spurningakannanir fyrir tiltölulega margra þátttakendur en jafnframt eru tekin viðtöl við hluta þeirra til að varpa skýrara ljósi á niðurstöður kannananna.

Þótt tilgangurinn með rannsókninni sé einkum fræðilegur geta niðurstöðurnar haft hagnýtt gildi, bæði í tengslum við orðabókagerð og við kennslu og þjálfun í orðabókanotkun.

Rannsóknarsjóður Háskóla Íslands styrkti verkefnið.


Rannsókn meðal háskólastúdenta

Þessi hluti rannsóknarinnar beindist að notkun tveggja stórra einmála orðabóka um íslensku, Íslenskrar orðabókar og Stóru orðabókarinnar um íslenska málnotkun, og var þríþættur.

  • Í fyrsta áfanga var tveimur hópum stúdenta séð fyrir aðgangi að rafrænni útgáfu þessara tveggja orðabóka og þeir beðnir að nota þær sem allra mest við hvers kyns verkefni í um það bil einn mánuð.
  • Annar áfangi fólst í skriflegri spurningakönnun sem lögð var fyrir alla stúdentana. Þar var kannað hvernig þeir höfðu notað hvora bók fyrir sig og hvernig þessar orðabækur höfðu reynst þeim við eigin úrlausnarefni.
  • Í þriðja áfanga voru tekin viðtöl við stúdenta úr hvorum hópi og þeir spurðir nánar út í einstök atriði í þeim tilgangi að fá betri innsýn í notkun þeirra og reynslu af orðabókunum tveimur.

Verkefnið naut stuðnings frá útgefendum orðabókanna sem samþykktu góðfúslega að veita nemendunum aðgang að þeim í þágu rannsóknarinnar. Auk þess veittu kennarar í þeim námskeiðum sem nemendurnir eru hluti af liðsinni sitt. Efnisöflun fór fram haustið 2007 og í ársbyrjun 2008 og hafði Ásta Svavarsdóttir umsjón með þessum þætti rannsóknarinnar. Fyrstu niðurstöður voru kynntar á málþingi NLF og LexicoNordica orðabókanotkun á Norðulöndum sem haldið var í Kaupmannahöfn snemma árs 2008.

Rannsókn meðal móðurmálskennara
Lögð var spurningakönnun fyrir móðurmálskennara á öllum skólastigum. Markmiðið var að kanna bæði orðabókanotkun þeirra sjálfra og þá kennslu og þjálfun sem nemendur þeirra fá í notkun orðabóka. Samtök móðurmálskennara aðstoðuðu við að ná sambandi við kennarana með tölvupósti. Könnuninni var svarað á vefnum og fór efnisöflun fram síðla hausts 2007.

Hér má nálgast spurningakönnun fyrir móðurmálskennara.

Grein um verkefnið með niðurstöðum úr síðari hluta könnunarinnar hefur verið birt í tímaritinu LexicoNordica (sjá Ásta Svavarsdóttir 2008).