Á orðfræðisviði stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum eru geymdar miklar heimildir um íslenskan orðaforða. Stofnunin varðveitir söfn Orðabókar Háskólans úr ritmáli og talmáli, viðheldur þeim og sér til þess að efniviðurinn sé aðgengilegur þannig að hann nýtist fræðimönnum innan og utan stofnunarinnar við rannsóknir á íslensku máli og orðaforða. Hann er mikilvæg heimild við gerð orðabóka af ýmsu tagi svo og handbóka- og kennsluefnis en efnið er jafnframt opinn öllum almenningi. Á orðfræðisviði er einnig unnið að frekari heimildasöfnun um orðaforðann, einkum í rafrænum málsöfnum, og að þróun nýrra aðferða við efnisöflun og úrvinnslu efnisins.
Orðfræðilegar rannsóknir af ýmsu tagi eru stundaðar við stofnunina. Þar má nefna samtímalegar og sögulegar rannsóknir á orðaforðanum í heild eða afmörkuðum hlutum hans, rannsóknir á formi, merkingu og notkun orða og orðasambanda og innbyrðis venslum þeirra, bæði formlegum og merkingarlegum, rannsóknir á uppruna og sögu orða og orðasambanda og fleira.
|