Íslenskt orðanet |
| Jón Hilmar Jónsson Þórdís Úlfarsdóttir Íslenskt orðanet er rannsóknarverkefni sem unnið er að á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Það er fólgið í því að sundurgreina og flokka íslenskan orðaforða eftir merkingarlegum einkennum orðanna. Orðanetið byggist á margþættum efniviði. Meginstofninn er sóttur til orðasambandalýsingarinnar í orðabókunum Orðastað og Orðaheimi auk orðasambandaskrár Orðabókar Háskólans. Við þetta efni bætast samstæð íslensk skýringarorð úr erlend-íslenskum orðabókum auk þess sem leitað er fanga í tölvutækum textasöfnum. Grunnhugmyndin að baki verkefninu er sú að rekja megi merkingarvensl innan orðaforðans út frá setningarlegum og orðmyndunarlegum venslum á milli orða. Með rækilegri lyklun orðasambanda er byggð upp orðaskrá þar sem einstök orð geta sameinað mikinn fjölda orðasambanda með merkingarlega samstæðu orðafari. Þá leiðir sjálf orðaskráin í ljós orðmyndunarleg samkenni sem jafnframt fela í sér merkingarlegan skyldleika. Auk þess er byggt á orðmyndunarlegum venslum í samsettum orðum og merkingarflokkun samsetninga sem rakin er í Orðastað. Merkingarvenslin koma fram undir ólíkum fyrirsögnum í orðanetinu, allt frá skýrustu venslum í samheitum og andheitum til heilla merkingarsviða. Greining efnisins og samtenging orðanna fer fram í skipulegum áföngum þannig að smátt og smátt hlaðast upp stærri heildir merkingartengdra orða innan einstakra orðflokka. Íslenskt orðanet hefur sérstöðu meðal sambærilegra merkingarneta. Meðal einkenna sem greina það frá öðrum orðanetum má nefna
Forritun og tæknivinna Ragnar Hafstað
Starfsfólk Gísli Rúnar Harðarson
Ásdís Þórsdóttir Styrkir Styrkur úr Rannsóknasjóði Rannís 2007 og 2008
|




Sjá fleiri gagnasöfn




Fyrirspurn
Veftré
English
Skandinavisk