| Pistlarnir sem hér eru birtust upphaflega á heimasíðu Orðabókar Háskólans undir yfirskriftinni Orð vikunnar. Í þeim er tekinn saman ýmiss konar fróðleikur um orð og orðasambönd, merkingu þeirra, notkun, sögu og uppruna. Flestir fjalla pistlarnir um einstök orð eða orðasambönd en sumir þeirra einnig um orðafar á tilteknu sviði eða um orð yfir ákveðið hugtak. Starfsfólk Orðabókarinnar tók efnið saman, aðallega á árunum 2002-2005. Pistlaskrif hófust aftur árið 2008 af miklum móð, þegar umfjöllun um orð birtust á ný undir yfirskriftinni Orð vikunnar á heimasíðu Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. |