aðgerð
Orðið aðgerð er fyrirferðarmikið í máli margra og hefur gjarna afar almenna merkingu, vísar til athafnar eða verknaðar af einhverju tagi sem á sér markmið eða er ætlað að skila tilteknum árangri. Segja má að orðið njóti sín vel í samfélagi nútímans, þar sem áhersla er lögð á markvissar athafnir á sem flestum sviðum.
Í lýsingu orðsins aðgerð í Íslenskri orðabók (3. útg., 2002) er fyrrgreind grunnmerking orðsins ekki í forgrunni en þar eru tilgreind ýmis merkingarbrigði gömul og ný sem ástæða er til að huga nánar að.
Í fremsta merkingarlið er skýringarorðið 'viðgerð' en sú merking á sér litla stoð í nútímamáli. Hún er hins vegar áberandi í eldra máli, eins og dæmi í ritmálssafni Orðabókarinnar allt frá 16. öld bera með sér, og á henni örlar í fornmáli eins og fram kemur í orðabók Árnanefndar, Ordbog over det norrøne prosasprog. Eftirtalin dæmi eru fengin úr ritmálssafni Orðabókarinnar (undir flettimyndinni aðgjörð):
Við þriðja merkingarlið er skýringin 'það að gera að fiski, hausa hann, taka innyflin o.s.frv.'. Dæmi í ritmálssafni Orðabókarinnar sýna að sú merking er komin til sögunnar seint á 19. öld en hún getur vissulega verið nokkru eldri.
Í Íslenskri orðabók eru alls tilgreindir 8 merkingarliðir í lýsingu orðsins aðgerð. Tveir þeir síðustu eru nýmæli í 3. útgáfu orðabókarinnar, en þar er vísað til notkunar orðsins sem hugtaks í stærðfræði og í sambandi við tölvuvinnslu.
Nafnorðið aðgerð er myndað af stofni sagnarinnar gera og forsetningunni að. Athyglisvert er að notkun orðsins í ólíkum merkingarbrigðum á sér skýra samsvörun í notkun sagnarsambandsins gera að og sú samsvörun sýnir að merkingarbrigðin eru öll sprottin af sömu rót. Í nútímamáli er sagnarsambandið einkum bundið fiskaðgerð en það kemur einnig fram í föstum samböndum með einstökum nafnorðum í almennari merkingu þar sem vísað er til eins konar lagfæringar eða frágangs (sbr. Íslenska orðabók og Orðastað):
Þetta yfirlit sýnir að merking orðsins aðgerð er samfelldari en ætla mætti ef aðeins væri litið til lýsingar þess í orðabókum.
Heimildir

- koparhringurenn af stór Vidre brotenn er nu i Adgiörd. [frá miðri 18. öld]
- allir störfuðu nú öllum stundum að aðgjörð skipsins til að gjöra það haffært. [frá miðri 19. öld]
- Veitti ráðgjafinn Akureyrar kaupstað 6.000 króna lán, þar af 4.000 til aðgjörðar á kirkjunni [frá lokum 19. aldar]
- var vegavinna aðallega aðgerðir á fjallvegum. [frá miðri 20. öld.]
Við þriðja merkingarlið er skýringin 'það að gera að fiski, hausa hann, taka innyflin o.s.frv.'. Dæmi í ritmálssafni Orðabókarinnar sýna að sú merking er komin til sögunnar seint á 19. öld en hún getur vissulega verið nokkru eldri.
Í Íslenskri orðabók eru alls tilgreindir 8 merkingarliðir í lýsingu orðsins aðgerð. Tveir þeir síðustu eru nýmæli í 3. útgáfu orðabókarinnar, en þar er vísað til notkunar orðsins sem hugtaks í stærðfræði og í sambandi við tölvuvinnslu.
Nafnorðið aðgerð er myndað af stofni sagnarinnar gera og forsetningunni að. Athyglisvert er að notkun orðsins í ólíkum merkingarbrigðum á sér skýra samsvörun í notkun sagnarsambandsins gera að og sú samsvörun sýnir að merkingarbrigðin eru öll sprottin af sömu rót. Í nútímamáli er sagnarsambandið einkum bundið fiskaðgerð en það kemur einnig fram í föstum samböndum með einstökum nafnorðum í almennari merkingu þar sem vísað er til eins konar lagfæringar eða frágangs (sbr. Íslenska orðabók og Orðastað):
- gera að sári,
- gera að heyi.
- býður henni að bæta fyrir hana og gjöra að fötum hennar. [frá miðri 19. öld]
- hann lét líka gjöra að súlum þeim, sem voru reistar til heiðurs við Marcus Aurelius keisara. [frá miðri 19. öld]
- mun ég láta gera að húsi þínu, svo það verði fagurt og hreint. [frá lokum 19. aldar]
- ...og kann eg segja með sönnu, at læknerinn, sem þá skyllde gjöra að mjer, þjáðe mig miklu meir enn kvillinn...
Þetta yfirlit sýnir að merking orðsins aðgerð er samfelldari en ætla mætti ef aðeins væri litið til lýsingar þess í orðabókum.
Heimildir
- Ritmálssafn Orðabókar Háskólans.
- Íslensk orðabók. Ritstjóri Mörður Árnason. Þriðja útgáfa, aukin og endurbætt. Reykjavík 2002.
- Ordbog over det norröne prosasprog. 1: a-bam. Redigeret af Helle Degnbol, Bent Chr. Jacobsen, Eva Rode, Christopher Sanders, Þorbjörg Helgadóttir. Udgivet af Den arnamagnæanske kommission. København 1995.
- Jón Hilmar Jónsson. Orðastaður. Orðabók um íslenska málnotkun. Önnur útgáfa, aukin og endurskoðuð. Reykjavík 2001.