sælgæti
Allir þekkja sælgæti, allir hafa borðað sælgæti en hvenær fóru menn að nota orðið sælgæti og í hvaða merkingu?
Orðið virðist ekki notað í fornu máli. Þess er að minnsta kosti ekki getið í fornmálsorðabók Johans Fritzners. Í orðabók Eiríks Jónssonar yfir forna málið (1863:576) er gefin skýringin 'Lækkerier', þ.e. 'kræsingar, krásir, góðgæti' og tekur Eiríkur fram að orðið sé úr samtímamáli. Sælgæti er einnig nefnt í orðabók Guðbrands Vigfússonar (1957:617) og merkingin sögð 'dainty' sem merkir 'ljúfmeti, lostæti, sælgæti'. Engin tilvísun er til fornra heimilda við orðið og hefur Guðbrandur það líklegast úr samtímamáli sínu eins og mörg önnur orð í bókinni.
Elstu dæmi Orðabókar Háskólans um orðið sælgæti eru frá miðri 16. öld. Oddur Gottskálksson þýðir t.d. í öðru Pétursbréfi 2,13:

- Þeir hallda fyrer sælgæti dagligar kræsingar.
- Þeir hafa yndi af að svalla um miðjan dag.
- Sa sem hryggur er hefur alldrei godann nockurn Dag / Enn gott gied er daglit Sælgiæte.
- heyr nu þetta / þu sem i Sælgiæte lifer.
- Margir hafa her Hæns, sumir til Skemtunar, eda Sælgætis meir enn til Gagns.
- Samvizka góð er sælgæti lífsins.
- Svefn er sælgæti hins veika (er sætr þeim þreytta).
- Ólíkt er sælgætið volæði.
- Mátuligt sælgæti er manni hollast (meðal-lukka) (meðal-stand).
- ekki að spara sykurdjöfulinn, sagði hann, hann hafði þann sið að tala óvirðulega um sælgæti.
- Ritmálsskrá OH
- Cleasby, Richard og Guðbrandur Vigfússon. 1957. An Icelandic-English Dictionary.Önnur útg. Oxford.
- Eiríkur Jónsson. 1863. Oldnordisk ordbog. Kjöbenhavn.