Flýtileiðir á vef Stofnun íslenskra fræða:


Máltækni og rafræn málsöfn

Á orðfræðisviði stofnunarinnar eru lögð stund á rannsóknir í máltækni og unnið að hagnýtum og fræðilegum verkefnum á því sviði. Með máltækni (eða tungutækni eins og hún var áður nefnd) er bæði átt við nýtingu tölvutækni í þágu tungumálsins og notkun tungumálsins innan tölvutækninnar.

Starfsemi stofnunarinnar á sviði máltækni beinist ekki síst að verkefnum sem tengjast öðrum viðfangsefnum orðfræðisviðs. Framfarir í tölvutækni og vélrænni vinnslu texta eru forsenda ýmissa  veigamikilla breytinga á vinnulagi við orðabókagerð og á efnisvali og efnistökum í orðabókum. Þær eru líka forsenda margvíslegra málrannsókna auk þess að hafa gildi fyrir frekari þróun máltækninnar sjálfrar.

Mörg máltækniverkefni á vegum stofnunarinnar felast í því að byggja upp rafræn málsöfn af ýmsu tagi en önnur felast í því að þróa aðferðir eða búnað til greiningar á máli.