Flýtileiðir á vef Stofnun íslenskra fræða:


Máltæknisetur

Máltæknisetur (Icelandic Center for Language Technology, ICLT) er samstarfsvettvangur orðfræðisviðs Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum (áður Orðabókar Háskólans), Málvísindastofnunar Háskóla Íslands og Tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík um rannsóknir, þróun og kennslu í tungutækni.

Hlutverk setursins er að vera miðstöð íslenskrar tungutækni. Hlutverki sínu gegnir það m.a. með því að


  • vera upplýsingaveita um íslenska tungutækni og reka vefsetur í því skyni
  • stuðla að samstarfi háskóla, stofnana og fyrirtækja um tungutækniverkefni
  • skipuleggja og samhæfa háskólakennslu á sviði tungutækni
  • taka þátt í norrænu, evrópsku og alþjóðlegu samstarfi á sviði tungutækni
  • eiga frumkvæði að og taka þátt í rannsóknaverkefnum á sviði tungutækni
  • eiga frumkvæði að og taka þátt í hagnýtum verkefnum á sviði tungutækni
  • halda utan um ýmiss konar hráefni og afurðir á sviði tungutækni
  • halda árlega ráðstefnu með þátttöku fræðimanna, fyrirtækja og almennings
  • beita sér fyrir eflingu íslenskrar tungutækni á öllum sviðum

Setrinu er einkum ætlað að vera vettvangur fyrir samstarf einstaklinga sem starfa á sviði tungutækni hjá samstarfsaðilunum, og jafnframt bakland þeirra vegna þátttöku í ýmiss konar innlendu og erlendu samstarfi.

Fulltrúi stofnunarinnar í stjórn Tungutækniseturs er Sigrún Helgadóttir.