prímus
Karlkynsorðið prímus ( fleirtala: prímusar) vísar til lítilla gastækja sem eldað er á, einkum í útilegum (eldri gerðir notuðu steinolíu eða bensín sem þær breyttu í gas). Í ritmálssafni Orðabókar Háskólans má m.a. finna eftirfarandi dæmi um orðið:
Upprunalega er Primus vörumerki og byggist á latneska lýsingarorðinu primus 'fyrstur'. Þetta er því dæmi um að sérnafn, þ.e.a.s. heiti á tiltekinni vörutegund, hafi smám saman orðið að samnafni sem notað er almennt um slíka hluti óháð vörumerki en slík þróun er vel þekkt í tungumálum.
Heimildir
- Steinolíuvélin ,,Primus `` sem við vísindalega reynzlu bar langt af öðrum þesskonar vélum og er sú einasta sem sæmd hefir verið verðlaunum og gull og silfurmedalíum.
- Þegar hún hafði sýslað um stund við ,, prímusa`` og eldunaráhöld.
- Það leikur allt í höndunum á þeim manni. En prímusar eru nú mikilsti lagstir niður síðan rafmagnið kom.
Upprunalega er Primus vörumerki og byggist á latneska lýsingarorðinu primus 'fyrstur'. Þetta er því dæmi um að sérnafn, þ.e.a.s. heiti á tiltekinni vörutegund, hafi smám saman orðið að samnafni sem notað er almennt um slíka hluti óháð vörumerki en slík þróun er vel þekkt í tungumálum.
Heimildir
- Ritmálssafn Orðabókar Háskólans
- Íslensk orðabók. (3. útgáfa.) Reykjavík: Edda 2002
- Íslensk orðsifjabók eftir Ásgeir Blöndal Magnússon. Reykjavík: Orðabók Háskólans 1989