Rannsóknir og verkefni |
Á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er unnið að hagnýtum og fræðilegum rannsóknum á íslensku máli, bókmenntum, sögu og menningu. Við stofnunina starfar fjöldi fastráðinna fræðimanna auk gesta sem hafa þar rannsóknaraðstöðu í lengri eða skemmri tíma. Tvær sérstakar tímabundnar rannsóknarstöður eru tengdar nöfnum Árna Magnússonar og Sigurðar Nordals. Þá veitir stofnunin erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum styrki Snorra Sturlusonar sem gera þeim kleift að dveljast um tíma á Íslandi við störf sín og loks stendur hún fyrir málþingum og ráðstefnum á fræðasviði stofnunarinnar. Rannsóknar- og þróunarverkefni
Þetta er ekki tæmandi listi yfir verkefni sem unnið er að við stofnunina heldur einungis þversnið sem sýnir nokkur viðamestu verkefnin sem nú er unnið að á ólíkum starfssviðum. Nákvæmari lýsingu á starfseminni á hverju verksviði má finna á síðunum til vinstri í veftrénu.
|




Sjá fleiri gagnasöfn




Fyrirspurn
Veftré
English
Skandinavisk