Menntamálaráðherra skipar Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum fimm manna stjórn til fjögurra ára í senn. Skulu þrír skipaðir samkvæmt tilnefningu háskólaráðs Háskóla Íslands og tveir án tilnefningar og er annar þeirra formaður stjórnar.
Stjórn stofnunarinnar skipa:
-
Lára Magnúsardóttir, sagnfræðingur, forstöðumaður Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands á Norðulandi vestra. Formaður stjórnar, án tilnefningar.
-
Ásgrímur Angantýsson, málfræðingur, málfarsráðunautur RÚV. Varaformaður stjórnar, án tilnefningar.
-
Guðrún Þórhallsdóttir, dósent, tilnefnd af háskólaráði Háskóla Íslands.
-
Torfi Tulinius, prófessor, tilnefndur af háskólaráði Háskóla Íslands.
-
Terry A. Gunnell, prófessor, tilnefndur af háskólaráði Háskóla Íslands.
Til þess að senda stjórnarmanni tölvupóst þarf að setja "@" merki í netfangið í stað "[hjá]"
|