Flýtileiðir á vef Stofnun íslenskra fræða:


Þjóðfræði

Þjóðfræðisafn
Þjóðfræðisvið annast þjóðfræðisafn stofnunarinnar, en í því er hljóðritað efni sem safnað er úr munnlegri geymd. Starfræktur er gagnagrunnur, á vegum Ísmús, þar sem finna má flokkaða yfirlitsskrá um þjóðfræðiefni ásamt hljóðritum (að hluta).

Rannsóknir og verkefni
Unnið er að rannsóknum á efni safnsins og ýmsum verkefnum sem því tengjast, einkum söfnun og skráningu. Útgáfa er snar þáttur í starfsemi þess. 

Varðveisla og flokkun
Lögð er áhersla á varðveislu, viðhald, flokkun og skráningu safnsins  þannig að gott aðgengi sé að því. Unnið er að gerð gagnagrunns sem veitir aðgang að efninu á netinu og er hluti safnsins þegar aðgengilegur