Flýtileiðir á vef Stofnun íslenskra fræða:


Orð og tunga

Mynd af kápu

Ritstjóri
Ásta Svavarsdóttir

Orð og tunga er ritrýnt tímarit sem gefið er út af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Tímaritið birtir greinar á fræðasviði stofnunarinnar sem lúta að máli og málfræði. Annars vegar er lögð áhersla á greinar um orðfræði, þ.á m. nafnfræði og íðorðafræði. Hins vegar er áhersla á greinar um orðabókafræði og orðabókagerð.

Í hverju hefti birtast nokkrar greinar um fyrirfram ákveðið þema sem áður hefur verið fjallað um á árlegri málstofu á vegum tímaritsins. Tímaritið birtir einnig aðrar fræðilegar greinar, ritdóma og umsagnir um nýlega útgefin verk á fræðasviðinu, s.s. orðabækur og handbækur, svo og lýsingar á verkefnum sem unnið er að innan stofnunarinnar eða utan. Auk þess birtast þar fréttir um ráðstefnur, fundi, ný og áhugaverð rit o.fl.

Tímaritið er að mestu leyti á íslensku en greinar á ensku, dönsku, sænsku og norsku eru einnig teknar til birtingar. Hverri grein fylgir stuttur efnisútdráttur á ensku en sé greinin rituð á erlendu máli er útdrátturinn á íslensku. Orð og tunga er ársrit og kemur að jafnaði út í ársbyrjun.

  • Efnisyfirlit og útdrættir Efnisyfirlit allra árganga og útdrættir úr greinum (á íslensku og ensku) frá og með 7. hefti 2005 (í vinnslu)