- Vefur Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum (SÁ) er unninn í vefumsjónarkerfinu SoloWeb.
- Efnisvinnsla, skipulag og umsjón var í höndum vefnefndar SÁ. Í henni sátu: Rósa Sveinsdóttir (formaður), Ásta Svavarsdóttir, Hallgrímur J. Ámundason, Jóhannes B. Sigtryggsson, Ólöf Benediktsdóttir og Svanhildur Gunnarsdóttir. Meginvinnan hófst í janúar 2007.
- Tæknivinna: Lausn hugbúnaður ehf.
- Útlitshönnun og myndataka: Auglýsingastofan H2 hönnun.
- Þýðendur:
- Halldóra Jónsdóttir, verkefnisstjóri á orðfræðisviði SÁ, þýddi flest það sem birt er á dönsku heimasíðunni.
- Philip Roughton, fræðimaður og þýðandi, þýddi flest það sem birt er á ensku heimasíðunni.
- Myndir af handritum: Jóhanna Ólafsdóttir, ljósmyndari SÁ.
- Þökkum afnot af öðrum myndum, m.a.
Efni vefsins
- Vefsetri SÁ er ætlað að veita yfirsýn yfir starfsemi hennar.
- Á vefnum er yfirlit yfir helstu starfssvið stofnunarinnar, rannsóknir sem þar eru stundaðar og verkefni sem unnið er að.
- Þar er aðgangur að gagnasöfnum stofnunarinnar sem opin eru almenningi og fræðimönnum.
- Einnig eru þar upplýsingar um útgáfuverk stofnunarinnar og um fræðslu og þjónustu á hennar vegum.
- Á forsíðunni birtast auk þess fréttir og tilkynningar um málþing, opna fyrirlestra og aðra viðburði.
Stjórnborð vefsins
- Vinstra megin á vefnum er veftré hans. Hnapparnir til vinstri á forsíðu sýna grunnskipulag efnisins eftir viðfangsefnum og starfssviðum. Þegar smellt er á einhvern þessara hnappa birtast undirflokkar eða einstakar undirsíður á viðkomandi sviði.
- Hnappar á láréttum borða neðan við mynd vísa á yfirlit yfir ýmsa þætti í starfsemi stofnunarinnar í heild, þvert á starfssviðin. Þar má nefna lista yfir alla starfmenn, yfirlit yfir viðamestu rannsóknir og verkefni, lista yfir öll útgáfuverk stofnunarinnar ásamt upplýsingum um fræðslu og þjónustu.
- Hægra megin er aðgangur að upplýsingum og gögnum sem nýtast öllum almenningi. Þar eru upplýsingar um handritasýningu stofnunarinnar, aðgangur að kennsluvef í íslensku fyrir erlenda stúdenta og að gagnasöfnum stofnunarinnar. Af forsíðunni er beinn aðgangur að þeim gagnasöfnum sem mest eru notuðu en ef smellt er á hnappinn 'Sjá fleiri gagnasöfn' birtist stafrófsraðaður listi yfir öll gagnasöfn á stofnuninni sem eru opin til leitar. Í ramma efst á síðunni hægra megin birtist fróðleikur eins og örnefni mánaðarins.
- Stjórnborðið er sýnilegt hvar sem notandinn er staddur á vefnum.
Leiðakerfi vefsins
- Leiðakerfi vefsins birtist í veftrénu sem kalla má fram með því að smella á viðeigandi hnapp efst á síðunni.
- Ef notendur eru ekki vissir um hvar upplýsingarnar sem þeir sækjast eftir er að finna má nota leitargluggann efst í vinstra horni.
Leit á vef stofnunarinnar
- Í leitargluggann er slegið inn leitarorð sem notandi telur líklegt að leiði hann á þær upplýsingar eða það efni sem hann sækist eftir og síðan er smellt á hnappinn við hlið hans.
- Leitarniðurstöður birtast á miðsvæðinu á vefnum og þegar smellt er á líklega niðurstöðu opnast viðkomandi vefsíða.
Á döfinni og viðburðadagatal
- Stofnunin stendur fyrir viðburðum sem eru öllum opnir, s.s. málþingum, fyrirlestrum og ráðstefnum. Upplýsingar um það sem er framundan birtast á forsíðu undir fyrirsögninni "Á döfinni"
- Ef smellt er á hnappinn "Fleiri viðburðir" opnast síða þar sem hægt er að skoða alla viðburði á árinu, bæði aftur í tímann og þá sem eru framundan. Viðburðir eru skráðir eftir mánuðum.
Fréttir
- Á forsíðu eru fluttar fréttir sem snerta stofnunina, starfsemi hennar og starfsfólk á einhvern hátt.
- Nýjustu fréttirnar hverju sinni birtast á forsíðu, en nálgast má allan fréttadálkinn með því að smella á hnappinn "Eldri fréttir..." neðst á síðunni.
Prenta út efni
- Mörgum finnst þægilegra að prenta út langt lesmál og lesa það á pappír. Þegar prenta skal síðu af vefnum er notast við prentskipun vafrans.
- Til að prenta er farið í "File > Print..." í vafranum.
- Hægt er að skoða prentsnið síðunnar áður en hún er prentuð með því að fara í „File > Print preview“.
Allt efni er unnið samkvæmt sérstökum verklagsreglum um efnisvinnslu á vefsetur stofnunarinnar.
|