Fréttabréf 1/2012 |
![]() |
Mér er það sönn ánægja að fylgja úr hlaði fyrsta rafræna fréttabréfi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Fréttabréfið mun koma út mánaðarlega og segja tíðindi af fjölbreyttu starfi stofnunarinnar og veita upplýsingar um nýjar útgáfur, fyrirlestra, rannsóknarverkefni, viðburði og fleira. Með nýjum pistlum um handrit, örnefni og forvitnileg orð langar okkur að vekja athygli á ómetanlegum frumgögnum stofnunarinnar.
Lesa meiraFyrsta vetrardag var hleypt af stokkunum erindaröðinni Góssið hans Árna um handrit úr safni Árna Magnússonar. Erindin verða á dagskrá í hádeginu annan hvern miðvikudag í vetur. 25. janúar fjallar Árni Heimir Ingólfsson um kvæða- og tvísöngsbók frá Vestfjörðum og 8. febrúar flytur Ásdís Egilsdóttir erindi um handrit handa konum.
Lesa meiraMálbreytingar og tilbrigði í íslensku máli á 19. öld, Prentsmiðja fólksins, Kvæðabók sr. Ólafs Jónssonar á Söndum og Vald og ofbeldi á Íslandi á miðöldum eru heiti á nýjum verkefnum sem unnin verða á stofnuninni með styrk úr Rannsóknasjóði.
Lesa meiraStofnunin býður nýjum áskrifendum að Griplu árgjaldið á 3.200 krónur sem er um 30% afsláttur af verði ritsins í lausasölu. Tilboðið gildir til 1. febrúar 2012. Nýjasta heftið, Gripla 22, er aðgengilegt á vef stofnunarinnar sem pdf-skjal á meðan áskriftartilboðið varir.
Lesa meiraRómverja saga, Handbók um íslensku, Úr fórum orðabókarmanns, Hulin pláss, Tækileg vitni, Fjöruskeljar, Sagan upp á hvern mann og alþjóðlegu tímaritin Gripla og Orð og tunga komu út á vegum stofnunarinnar árið 2011.
Lesa meiraAðgangur að íslensk-skandinavísku veforðabókinni ISLEX er ókeypis á vefnum. Veforðabókin tengir íslenskan orðaforða og málnotkun á nútímalegan hátt við önnur norræn mál og styrkir norrænan málskilning að margvíslegu leyti.
Lesa meiraStundum verða atvik til þess að nöfn manna tengjast einhverjum atburði og festast í orðasamböndum eða sem heiti á einhverju. Oft er erfitt að rekja hvaða persóna er að baki og fyrirspurnir bæta litlu sem engu við. Hér verða nefnd tvö slík nöfn, Ingjaldur og Þorlákur.
Lesa meira



Sjá fleiri gagnasöfn




Fyrirspurn
Veftré
English
Skandinavisk