Íslenskunámskeið
Háskóla Íslands
2.–27. júlí 2018
Dagana 2.–27. júlí halda Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, alþjóðasvið, og Hugvísindasvið Háskóla Íslands alþjóðlegt námskeið í nútímaíslensku. Um 35 erlendir stúdentar sækja námskeiðið. Auk íslenskunámsins hlýða þeir á fyrirlestra um íslenskt samfélag og menningu og heimsækja sögustaði á Suður- og Vesturlandi. Alþjóðleg sumarnámskeið í íslensku eru haldin hvert ár. Þetta er 30. námskeiðið sem SSN heldur.
- Nánari upplýsingar um íslenskunámskeiðið (á ensku)
Deila þessari frétt: |
![]() |
![]() |