Skip to main content

Fréttir

Nýr vef- og kynningarstjóri

Nýr vef- og kynningarstjóri Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er Eva María Jónsdóttir. Hún hóf störf 4. janúar 2016 og hefur aðsetur í Árnagarði. Eva lauk BA-prófi í almennri bókmenntafræði og frönsku frá Háskóla Íslands árið 2007. Hún lauk MA-prófi í miðaldafræðum frá sama skóla haustið 2015 og fjallaði meistararitgerð hennar að hluta um óútgefin rímnahandrit úr safni Árna Magnússonar.

Áður starfaði Eva við fjölmiðla í um tvo áratugi, lengst af sem dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu og Sjónvarpinu en hún hefur einnig víðtæka reynslu af kynningarstörfum svo sem fyrir Listahátíð í Reykjavík, kvikmyndahátíðina Nordisk Panorama. Eva hefur jafnframt setið í stjórn í Miðborgarstjórnar Reykjavíkur, Húsafriðunarnefnd og fagráði um umferð.