Skip to main content

Specimen Lexici Runici og Glossarium Priscæ Linguæ Danic

Útgáfuár
2010

Ritið er eftir Magnús Ólafsson í Laufási.

Ný útgáfa í ritstjórn Anthony Faulkes og Gunnlaugs Ingólfssonar.

Orðfræðirit fyrri alda V.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Viking Society for Northern Research 2010.

Specimen Lexici Runici (Sýnishorn rúnaorðabókar) er fyrsta prentaða orðabókin um íslenskt mál. Hún var samin á fyrri hluta 17. aldar af séra Magnúsi Ólafssyni í Laufási (1573–1636) og gefin út í Kaupmannahöfn árið 1650. Uppflettiorðin eru með rúnaletri og er hið latneska nafn bókarinnar dregið af því. Orðaforðinn nær fyrst og fremst yfir forníslensk rit, einkum Íslendingasögur, konungasögur og gamlan kveðskap sem ekki var til á prenti þegar orðabókin var gerð. Hún varpar ljósi á sögu íslenskra orða og sýnir þekkingu og viðhorf lærdómsmanna til fornmennta á 17. öld sem var upphafsskeið íslenskra fræða.

Í þessari nýju útgáfu eru prentaðar myndir af frumútgáfunni frá 1650. Á gagnstæðri síðu við hverja mynd er samsvarandi texti eftir handriti sem varðveitt er í Uppsölum í Svíþjóð og geymir uppskrift frumgerðar orðabókarinnar. Í inngangi er gerð grein fyrir tilurð orðabókarinnar og varðveislu textans. Þá eru rækilegar skýringagreinar við hverja orðsgrein í bókinni þar sem reynt er að grafast fyrir um í hvaða riti hvert einstakt orð kemur fyrst fyrir. Á eftir skýringagreinunum er texti handritsins í Uppsölum birtur í heild. Að lokum er ítarlegur listi yfir öll helstu orð, orðatiltæki, orðtök og málshætti sem koma fyrir í bókinni.

Útgáfuna önnuðust Anthony Faulkes prófessor emeritus við háskólann í Birmingham og Gunnlaugur Ingólfsson rannsóknardósent við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Háskólaútgáfan annast sölu og dreifingu bókarinnar.

Í ritröðinni Orðfræðirit fyrri alda er endurútgáfa nokkurra gamalla orðabóka sem hafa sérstöðu í íslenskri orðabókagerð. Þær eru um leið mikilvægar heimildir um íslenskan orðaforða og íslenska málsögu.