Skip to main content

Í þessari bók eru ljósmyndir af þeim skinnblöðum úr Þjóðminjasafni Íslands sem nú eru varðveitt á Stofnun Árna Magnússonar. Handritin sem hér birtast voru afhent Árnastofnun til varðveislu 11. maí 2011.

Hér má panta eintak af bókinni.

Þegar Forngripasafn Íslands var stofnað 1863 bárust því fljótlega allnokkur skinnblöð. Á þessum tíma var landið mjög fátækt af skinnhandritum enda höfðu fræðimenn á 17. og 18. öld safnað þeim og komið í söfn í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi og víðar. Það sem helst var eftir í landinu voru stök blöð sem leyndust í bókbandi og þá gjarnan með efni sem fræðimenn fyrri alda höfðu lítinn áhuga á, svo sem latneskum messusöng. Nú á dögum er meiri áhugi á menningarsögulegu gildi þessara heimilda og með þessum ljósmyndum er það von okkar að efni þetta verði fleirum aðgengilegt.