Skip to main content

Alþjóðlegur sumarskóli í íslenskri tungu og menningu

Sumarnámskeið 2018
Alþjóðlegt námskeið í íslensku júlí 2018

1.31. júlí

2024.
Umsóknarfrestur er til og 15. febrúar ár hvert.

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og hugvísindasvið Háskóla Íslands standa fyrir alþjóðlegum sumarskóla í íslenskri tungu og menningu í júlímánuði ár hvert. Námskeiðið er einkum ætlað stúdentum í tungumála- og bókmenntanámi en aðrir sem áhuga hafa á íslensku nútímamáli og menningu eiga þess kost að sækja námskeiðið.

Fjörutíu og fimm nemendur geta tekið þátt í námskeiðinu ár hvert og er þeim skipt í tvo hópa eftir getu. Nemendur þurfa að hafa lokið námskeiðinu Icelandic Online I sem hægt er að nálgast frítt á netinu. Kunnátta er prófuð. Kennslan fer fram í 80 kennslustundum, þremur til fimm stundum á dag í fjórar vikur. Auk þess er boðið upp á fyrirlestra um íslenskar bókmenntir, sögu, menningu og samfélag. Þátttakendur þurfa að hafa lokið námi sem samsvarar einu ári á háskólastigi. Námskeiðið getur veitt 10 ECTS einingar á BA-stigi.

Þátttökugjald fyrir sumarið 2024 er 750 evrur fyrir staðnámskeið og 550 evrur fyrir námskeið á netinu (miðað við gengi 29. nóvember 2023) en með því greiða þátttakendur fyrir kennslu og fyrirlestra og enn fremur kynnisferð um Reykjavík og dagsferðir á sögustaði sem farnar eru á vegum námskeiðsins. Þátttakendur verða að greiða allan annan kostnað sjálfir, s.s. ferðakostnað og uppihald. Hægt er að útvega þeim þátttakendum sem vilja gistingu og er leigan u.þ.b. 750 evrur (miðað við gengi 29. nóvember 2023). Engin þjónusta er innifalin. Reiknað er með að nemarnir þurfi a.m.k. 25 evrur á dag í fæðispeninga. Ekki er hægt að fá þátttökugjaldið endurgreitt.

Umsóknarfrestur er til 15. febrúar ár hvert og geta umsækjendur vænst þess að fá svar við umsóknum í mars. Þátttakendur eru þá beðnir um að greiða þátttökugjaldið sem staðfestingu á umsókn.

Nánari upplýsingar um námskeiðið og verð, auk umsóknareyðublaðs, eru á ensku síðunni.