Search
Heilagur Nikulás
Undirbúningur hefur staðið yfir í mörg ár að vísindalegri útgáfu á Nikulássögum erkibiskups, sem bæði eru til þýddar og frumsamdar. Elsta brotið er þýðing, líklega frá 12. öld, varðveitt í handriti frá því um 1200. Þessi þýðing virðist hafa verið notuð við þá gerð sögunnar sem varðveitt er í handritinu Stock. perg. nr. 2 fol.
NánarVerk Jóns Guðmundssonar lærða
Árið 1998 kom út Eddurit Jóns Guðmundssonar lærða, I–II útgefin af Einari G. Péturssyni. Þar eru gefin út tvö rit. Hið fyrra, Samantektir um skilning á Eddu, er að efni til uppskrift á Snorra-Eddu eftir glötuðu handriti með löngum viðaukum.
NánarÍslenskt orðanet
Íslenskt orðanet er rannsóknarverkefni sem miðar að því að ná fram samfelldu yfirliti í orðabókarbúningi um íslenskan orðaforða og innra samhengi hans, þar sem byggt á greiningu á merkingarvenslum íslenskra orða og orðasambanda.
NánarOrðstöðulyklar
Orðstöðulykill er skrá yfir orðmyndir sem koma fyrir í tilteknum texta eða textum, ásamt upplýsingum um nánasta samhengi þeirra. Algengastir eru svonefndir KWIC-lyklar (e. Key Word In Context) þar sem hvert dæmi um lykilorðið stendur í miðri línu ásamt orðum sem standa næst á undan því og eftir í textanum.
NánarTilvitnun í efni á vef og gagnasöfn
Á síðunni eru leiðbeiningar um hvernig megi vitna í efni á vef stofnunarinnar og í gagnasöfn hennar. Dæmin eru á APA sniði en frjálst er að velja annað snið.
NánarOrðasambandsskrá
Orðasambandaskráin er unnin upp úr tölvuskráðum notkunardæmum úr Ritmálssafni Orðabókar Háskólans sem spanna íslenskar ritheimildir allt frá miðri 16. öld. Í skránni birtist fjölbreytileg mynd af notkun einstakra orða í föstum samböndum og í dæmigerðu samhengi við önnur orð.
NánarSturlubók Landnámu AM 107 fol.
Pappírshandrit, 76 blöð, skrifað um miðja 17. öld af Jóni Erlendssyni presti í Villingaholti í Flóa eftir skinnbók frá því um 1400 sem síðar komst í eigu P.H. Resens og fór frá honum í Háskólabókasafnið í Kaupmannahöfn og brann þar 1728.
NánarHandritasafn Árna Magnússonar - tveggja blaða brot
AM 1 g fol AM 104 fol AM 105 fol AM 106 fol AM 107 fol AM 108 fol AM 110 fol AM 111 fol AM 112 fol AM 113 a fol AM 113 b fol AM 113 c fol AM 113 d fol AM 113 e fol
Nánar