Skip to main content

Fréttir

Reynslusögur frá seinni heimstyrjöld

Akureyrarkirkja. Mynd: Kristín M. Jóhannsdóttir.

 

Reynslusögur kvenna á Akureyri frá seinni heimstyrjöld er eitt af fimm verkefnum sem tilnefnd eru til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands 2013. Anna Kristín Gunnarsdóttir, nemandi í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands vann verkefnið undir leiðsögn Rósu Þorsteinsdóttur, þjóðfræðings á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Verkefnin fimm voru unnin á vegum sjóðsins sumarið 2012 og hafa nú verið valin sem öndvegisverkefni. Verðlaunin verða afhent í lok febrúar á Bessastöðum af forseta Íslands, herra Ólafi Ragnari Grímssyni.

Önnur verkefni sem tilefnd eru í ár eru: 

Notkun þrívíddarmódels og staðsetningartækja við undirbúning skurðaðgerða á höfði.
Nemandi: Sigrún Björk Sævarsdóttir, nemandi í heilbrigðisverkfræði við Háskólann í Reykjavík. Leiðbeinendur: Paolo Gargiulo, Landspítala og Háskólanum í Reykjavík og Ingvar Hákon Ólafsson, Landsspíta.

OM-Hönnun, þróun og smíði nýs hljóðfæris
Nemandi: Úlfur Hansson, Listaháskóla Íslands. Leiðbeinandi: Hans Jóhansson - Fiðlusmíðaverkstæði.

Prófun á nýjum hröðunarnema til að meta stökkkraft
Nemandi: Ásdís Magnúsdóttir, nemandi í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands. Leiðbeinandi: Baldur Þorgilsson, Kine ehf og Háskólanum í Reykjavík.

Ströndin og skógurinn: Útivistarnotkun og sóknarfæri
Nemandi: Sindri Birgisson, nemandi í skipulagsfræðum við Landbúnaðarháskóla Íslands. Leiðbeinendur: Helena Guttormsdóttir Landbúnaðarháskóla Íslands, Hrafnkell Proppé Landbúnaðarháskóla Íslands og Íris Reynisdóttir frá Akraneskaupstað.

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru árlega veitt þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt er af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Verðlaunin voru fyrst veitt í ársbyrjun 1996 og hafa síðan verið veitt á ári hverju við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Árlega velur stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna 5-6 verkefni sem öndvegisverkefni sjóðsins og hljóta þau tilnefningu til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands.

Stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna byggir mat sitt á öndvegisverkefnum á mati fagráða sjóðsins, sem eru fjögur; fagráð á sviði heilbrigðisvísinda, fagráð á sviði verkfræði, tæknivísinda og raunvísinda, fagráð á sviði náttúru- og umhverfisvísinda og fagráð á sviði hug- og félagsvísinda. Stjórn sjóðsins er skipuð fulltrúum frá Rannís, mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Stúdentaráði Háskóla Íslands, Samtökum iðnaðarins og Reykjavíkurborg.