Skip to main content

Fréttir

Styrkir Snorra Sturlusonar – umsóknarfrestur er til 1. desember

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum annast styrki Snorra Sturlusonar. Styrkirnir eru veittir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum (ekki háskólastúdentum) á sviði mannvísinda til að dveljast á Íslandi í þrjá mánuði hið minnsta í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi.

Styrkirnir miðast að öllu jöfnu við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega til og frá Íslandi og dvalarkostnaði innanlands. Af tveimur jafnhæfum umsækjendum skal að jafnaði sá hljóta styrk sem er frá Austur- og Suður-Evrópu, Asíu, Afríku, Rómönsku Ameríku eða Eyjaálfu.

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum greiðir götu styrkþega meðan á Íslandsdvöl þeirra stendur og í lok hennar skulu styrkþegar skila stofnuninni greinargerð um hvernig styrknum var varið.

Styrkirnir eru veittir árlega. Þriggja manna nefnd, sem skipuð er fulltrúum frá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands og Rithöfundasambandi Íslands, úthlutar styrkjunum.

Í styrkumsókn sinni skulu umsækjendur gera stutta en rækilega grein fyrir tilgangi með dvöl á Íslandi, dvalartíma, svo og menntun og störfum.

Umsóknir skal senda fyrir 1. desember ár hvert á netfangið branislav.bedi@arnastofnun.is eða bréflega á heimilisfangið:

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
íslenskusvið
Eddu, Arngrímsgötu 5
107 Reykjavík
Ísland