Skip to main content

Fréttir

Styrkir Snorra Sturlusonar veittir í átjánda sinn

Í tilefni af 750. ártíð Snorra Sturlusonar, 23. september 1991, ákvað ríkisstjórn Íslands að efna til styrkja sem kenndir yrðu við nafn hans. Samkvæmt reglum um styrkina, sem gefnar voru út 1992, skulu þeir árlega boðnir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. Styrkirnir skulu veittir í þrjá mánuði hið minnsta og miðast við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega og dvalarkostnaði innanlands.

Þýskur skiptinemi og sjö tónlistarmenn endurhljóðblanda ölvísu

Thomas Kempka er þýskur skiptinemi við Háskóla Íslands sem heldur úti vefsíðunni Digital Kunstrasen (www.digitalkunstrasen.net) sem gefur út og dreifir tónlist, ljóðlist og myndlist á Netinu. Thomas sat meðal annars í námskeiði um íslenska menningu og þar tók hann sér fyrir hendur að vinna verkefni með upptöku úr þjóðfræðisafni stofnunarinnar. Hann valdi ölvísuna, Krúsarlögur kveikir bögur, í upptöku frá 1957 og fékk sjö tónlistarmenn frá ýmsum löndum til að endurhljóðblanda upptökuna.

Tiodielis saga - ævintýri í ætt við riddarasögur

Út er komin bókin Tiodielis saga.  Tiodielis saga er ævintýri sem sver sig í ætt við riddarasögur og segir frá riddara sem hverfur úr konungshirð á skóga, fer úr klæðum sínum og tekur á sig dýrsham og etur skógardýr og hefur eftir þeirra náttúru. Kona hans og elskhugi hennar fela klæði riddarans sem þá festist í dýrshamnum og fjallar sagan síðan um hvernig hann nær aftur lífi með mannseðli.

Þorsteinn frá Hamri - Baggalútur - Þórbergssetur

Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu 2009 voru afhent á hátíðardagskrá í Ketilhúsinu á Akureyri. Auk þess voru veittar tvær sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskrar tungu.

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra veitti Þorsteini frá Hamri Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2009.

Orðið.is - Samkeppni

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur nú opnað aðgang að tölvutækum gögnum úr Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls (BÍN).
Aðgangurinn er veittur með atbeina Já sem stutt hefur stofnunina með veglegum fjárstyrk í þessu skyni. Gögnin verða opin til ársloka 2012, að lágmarki.

Afmælisrit Svavars Sigmundssonar kemur út innan skamms

Nefningar, afmælisrit til heiðurs Svavari Sigmundssyni á sjötugsafmæli hans 7. september síðastliðinn, er við það að koma út. Von er á bókinni úr prentsmiðju innan skamms og þá verður henni dreift til áskrifenda.

Ritið inniheldur 35 greinar eftir Svavar sjálfan sem fjalla einkum um nafnfræðileg efni en einnig málsögu, orðhlutafræði, orðsifjafræði o.fl. Ritið er ríflega 450 blaðsíður og því fylgir ítarleg nafnaskrá og ritaskrá Svavars.

Svolítil seinkun hefur orðið á útgáfunni og eru áskrifendur ritsins beðnir velvirðingar á því.

Ritstjórn

Íslenska til alls - ný útgáfa

Íslensk málnefnd kynnti tillögur að íslenskri málstefnu á málræktarþingi á degi íslenskrar tungu í fyrra, Íslenska til alls. Tillögurnar voru settar fram í ellefu köflum og snerta mikilvægustu svið þjóðlífsins að mati nefndarinnar. 

Í tilefni dags íslenskrar tungu 2009 hefur Íslenska til alls verið gefin út að nýju, endurbætt. Hægt er að lesa og prenta út nýju útgáfuna á heimasíðu menntamálaráðuneytis.

Dagur íslenskrar tungu

Degi íslenskrar tungu verður fagnað í fjórtánda sinn 16. nóvember 2009. Fastlega má gera ráð fyrir að flestir skólar landsins og margar aðrar stofnanir og samtök fagni deginum með einhverju móti.